helst í fréttum og friðarverðlaun Nóbels
10. desember 2010 klukkan 12:34
Eftir ágætis lestrardag hér heima í gær skelltum við Haukur okkur í ræktina seinnipartinn. Það var fínt, nema hvað mér þykir alveg með ólíkindum leiðinlegt að hlaupa á bretti, það er þúsundsinnum skemmtilegra að hlaupa úti að mínu mati. Nema hvað á meðan ég barðist þarna um á brettinu horfði ég á sjónvarpið á sænskan þátt á NRK2 sem heitir Kobra og var þátturinn m.a. helgaður manni sem dreifði tómum póstkortun og bað fólk að skreyta þau og skrifa leyndarmál (nafnlaust) og senda honum. Gæjinn er að græða þvílíkt á þessu, gaf út bók, heldur fyrirlestra og er þvílíkt að bjarga fullt af fólki sem var með þessu litla póstkorti að opna sig um eitthvað sem það hafði verið að burðast með jafnvel allt sitt líf. Síðan horfði ég á fréttirnar en þar er Nóbelsmálið ofar öllu og samskipti Kína og Noregs, sem hangir á bláþræði. Ein af ríkari konum Noregs fannst látin á mánudaginn og nú er farið að rannsaka málið því eitthvað virðist vera bogið við það. Þessi kona hét Ellen Ugland en maðurinn hennar Johan Jörgen Ugland dó í mars á þessu ári. Konan (Ellen) og barnabarn erfðu eignir milljarðamæringsins en þrjú börn hans fengu ekkert. Miklir kuldar eru einnig fréttnæmir, verð á rafmagni hækkar og hækkar. Ribbe - ein af jólasteikunum hér selst eins og heitar lummur, ekki vegna þess að fólk ætlar að nota það í jólamatinn, nei þetta er svo ódýrt, mikið ódýrara en hundamatur.
Eftir þessa afar fróðlegu hlaupabrettasjónvarpsáhorfsæfingu fórum við á leikskólann að sækja Þórð því í gær var langur fimmtudagur eins og ég kom inn á í bloggfærslu gærdagsins. Þórður neitaði að koma heim, það var svo gaman. Þau voru að horfa á Tomma og Jenna en áður voru þau búin að fara út með vasaljós og rákust þá á ummerki efitr jólasveininn, fundu spor og meira segja skóna hans!!! Síðan voru þau búin að fá heitt kakó, pizzu og piparkökur, rosalega kósí.
Þórður fór svo fljótlega að sofa þegar heim kom en ég eldaði ferlega einfaldan pastarétt:
Soðið pasta
Steikta/bakaðar/grillaðar kjúklingabringur, brytjaðar
Rauð paprika, niðursöxuð
Pestó
Öllu hrært saman og etið!!!
Ég má ekki gleyma því að minnast á það að í dag er "Nobeldagen" Dánardagur Alfred Nobels en auðlegð hans var notuð til að stofna Nóbeldsverðlaunin. Það er því mikið um að vera í Osló í dag en friðarverðlaunin eru veitt þar en eins og þið vitið þá er handhafi friðarverðlauna Nóbels þetta árið er kínverjinn Liu Xiaobo en því miður þá getur hann ekki sjálfur tekið á móti þeim því hann situr í fangelsi í Kína. Kínversk stjórnvöld eru ævareið út í norsk stjórnvöld í þessu máli en norsk stjórnvöld segja að þau hafi ekkert að gera með þessi verðlaun það sé hins vegar nóbelsnefndin. Nokkrar þjóðir hafa af þessum sökum afboðað sína fulltrúa við athöfnina í dag. Stemmingin er því aðeins spennuþrungnari en hún var í fyrra þegar Obama fékk friðarverðlaunin en þá ríkti meiri gleði og eftirvænting.
Ef þið viljið kynna ykkur Liu Xiaobo betur þá getið þið það t.d. hér. Ég gæti skrifað hér langan pistil um mannréttindabrot í Kína en ætla ekki að gera það í dag - það gæti orðið svo langt mál......þarf að fara að einbeita mér að lestri námsbóka.
Dagurinn verður með svipuðu sniði og í gær:
Lestur, leikskólaskutl, spinning, pizzugerð......
Eigið góðan dag!!

gangi þér vel á lokaspretti lestrar fyrir næsta próf