Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

póstburðargjald

08. desember 2010 klukkan 16:56
Í dag komu þrír pakkar frá Íslandi, sem er ekki í frásögu færandi nema hvað að mér varð litið á póststimplana á þessum pökkum og varð um og ó:
3 kg pakki ----> 4255,- kílóverð 1418,-
3 kg pakki ----> 4450,- kílóverð 1483,-
8 kg pakki ----> 7130,- kílóverð 891,-
Jamm það er dýrt að eiga ættingja í útlöndum sem manni finnst maður verða að senda pakka. Ef ég þarf að eiga heima hér í Noregi um næstu jól þá gæti borgað sig að kaupa flugmiða og fara með fulla ferðatösku af jólapökkum heim og fylla hana aftur heima.....en pælið í því hvað það er nú vitlaust.....eða bara að sleppa þessu Undecided Því ef þið spáið í það hvað ein jólagjöf er búin að kosta....í fyrsta lagi fyrir þann sem kaupir hana+far/póst+umhverfisáhrifin. Hvet ykkur til að lesa þessa grein eftir Stefán Gíslason: síða 1 og síða 2.

Annars þakka ég fyrir okkur - það er auðvitað alltaf gaman að fá pakka en sumt má náttúrulega ekki fara útí öfgar.
 
Sú ráðagóða
Þú verður ekkert þarna um næstu jól og hana nú.
#1
08. desember 2010 klukkan 19:52
Já þetta er fokdýrt, ég kom slatta af pökkum á nágrannann sem skrapp aðeins heim heheh, var svo að senda tvo litla létta pakka og það kostaði 300 kr. Sem betur fer er dóttir mín og tengdaforeldrar að koma í næstu viku með fullar töskur af góssi hehe
#2
08. desember 2010 klukkan 20:42

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.