miðvikudagur
08. desember 2010 klukkan 11:32
Lestrardagur í dag, sem og næstu næstu daga - þessir lestrardagar eru svo brotnir upp með hinu og þessu. Í gær braut ég upp daginn með að fara í búð og kaupa jólagjöf handa mömmu og pabba, við vorum áður búin að kaupa allar "Íslands" gjafirnar og senda heim með Bríeti þannig að þær ættu að skila sér á leiðarenda fyrir jól. Gjöfin til mömmu og pabba fer í póst á morgun og því er ég komin með ástæðu til að rölta í bæinn þá. Í dag verð ég að brjóta upp daginn með að fara í vefnaðarvörubúðina og kaupa rennilás í gallann hans Þórðar
þoli ekki þegar nýjar (og dýrar) flíkur eru að klikka svona og það á versta tíma þegar maður þarf virkilega á þeim að halda í kuldanum.
Í gærkvöld horfði ég á þáttinn um Reyni Pétur sem var á ruv á sunnudagskvöld. Það eru tuttugu og fimm ár síðan hann gekk hringinn í kring um Ísland, ég man svo vel eftir þessum atburði. Maður fylgdist með í fréttunum á hverju kvöldi hvert hann var kominn, hvernig gekk þann daginn og alltaf var hann jákvæður og glaður. Hann hefur ekkert breyst með það, jákvæðnin uppmáluð. Þessi maður hann Reynir Pétur er algjör perla, það mættu margir taka sér hann til fyrirmyndar, lokaorðin hans eru svo sönn: "að vera glaður og jákvæður og bjartsýnn og með von í hjarta, ef maður hefur allt þetta, getur maður sigrast á öllu".
Eigið góðan dag!!
þoli ekki þegar nýjar (og dýrar) flíkur eru að klikka svona og það á versta tíma þegar maður þarf virkilega á þeim að halda í kuldanum. Í gærkvöld horfði ég á þáttinn um Reyni Pétur sem var á ruv á sunnudagskvöld. Það eru tuttugu og fimm ár síðan hann gekk hringinn í kring um Ísland, ég man svo vel eftir þessum atburði. Maður fylgdist með í fréttunum á hverju kvöldi hvert hann var kominn, hvernig gekk þann daginn og alltaf var hann jákvæður og glaður. Hann hefur ekkert breyst með það, jákvæðnin uppmáluð. Þessi maður hann Reynir Pétur er algjör perla, það mættu margir taka sér hann til fyrirmyndar, lokaorðin hans eru svo sönn: "að vera glaður og jákvæður og bjartsýnn og með von í hjarta, ef maður hefur allt þetta, getur maður sigrast á öllu".
Eigið góðan dag!!
Gangi þér vel í lestrinum og rennilsásaskiptum, þar öfunda ég þig ekki mikið!!!