Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

prófdagur

06. desember 2010 klukkan 08:30
Ég er að fara í próf.......grrrrrrr!! Eftir ca einn og hálfan klukkutíma mun ég sitja við borð, hríðskjálfandi á beinunum - já stressið hellist yfir mig svona rétt fyrir eða í þann mund sem prófið sjálft byrjar. Ég hef það fyrir venju þegar ég þarf að mæta í próf kl 9 að líta ekkert í bækur þann morgun. Ég legg aðaláherslu á að fá góðan nætursvefn og fer því ævinlega snemma að sofa fyrir prófdag, vakna svo og tek morguninn rólega. Kaffi og ristað brauð með osti - svo brytja ég epli í box og tek nokkrar mandarínur með og vatnsbrúsa. 
Eftir prófið á ég von á að, annaðhvort:
a) Verða eins og sprungin blaðra, skríða upp í rúm og sofa.
b) Verða upptjúnnuð og koma ýmsu í verk.
Það er engin leið til að vita hvor líðanin það verður a eða b og mun ég láta ykkur vita í kvöld.
Seinniparturinn er planaður í ca klukkutíma í ræktinni og svo er Þórðru Logi búin að panta prjónakennslu, því indjánar búa til sín föt sjálfir!!!!!
Eigið góðan dag.
 
 
Þetta mun ganga vel - og auðvitað búa indíánar til sín föt sjálfir, vertu ekkert að draga úr því ;)
#1
06. desember 2010 klukkan 10:10
 
Magga
Snillingur er hann sonur þinn...og jú, þeir báðir reyndar :)

Og gangi þér vel í prófinu! Þú átt eftir að massa þetta!

Kv. Magga
#2
06. desember 2010 klukkan 10:55
Gangi þér vel í prófinu, hlakka til að heyra í þér eftir það
#3
06. desember 2010 klukkan 11:25

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.