Kökuuppskrift í tilefni aðventunnar
03. desember 2010 klukkan 11:18
Hið ljúfa líf - ávaxtakaka
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanillusykur
1 ½ dl sykur
3 egg
500 gr döðlur (ég nota ferskar, því þær eru svo góðar og svo eru þær til sölu í lausvikt í öllum búðum þessa dagana).
100 gr gráfíkjur
100 gr apríkósur
5 dl Brasilíuhnetur eða möndlur (ég nota möndlur, af sömu ástæðu og ég nota ferskar döðlur).
Þurrefnunum er blandað saman og eggin hrærð saman við. Þá er grófbrytjuðum ávöxtum og hnetum/möndlum bætt saman við. Deigið á að vera mjög þungt. Formkökuform ca 1 líters er smurt vel að innan og bökunarpappír settur í botninn. Kakan er bökuð neðarlega í ofni við 150°C í ca 1 ¼ tíma. Hún er látin kólna í forminu og líklega þarf að vanda sig við að ná henni úr því, þarf e.t.v. að nota hníf. Best er að pakka kökunni vel inn og geyma í ísskáp.