Mamma, ég ætla að reykja þegar ég verð stór...
03. desember 2010 klukkan 09:06
.....þetta tilkynnti yngri sonurinn þegar við vorum að versla í Kiwi (matvörubúð) núna í vikunni. Af hverju spurði ég, mjög hissa á þessari opinberun og það fyrir framan nammirekkann í búðinni. Hann svaraði, bara, ég vil vita hvernig þetta er!!! En Þórður Logi það er svo vitlaust sagði ég og týndi nokkra nammimola í poka. Af hverju? sagði hann, nú það er t.d. hættulegt sagði ég. Já en ég ætla að prófa einu sinni, hélt hann áfram - mamma hennar Heklu reykir og hún er ekki vitlaus. Mér varð orðavant, þarna stóð ég agndofa á drengnum, týnandi nammi í poka sem ætti nú ekki að teljast gáfulegt eða til fyrirmyndar og ræddi við son minn fimm ára sem ætlar að prófa að reykja þegar hann er stór!!!!
Þegar heim var komið skarst stóri bróðir í umræðuna og sá var hneykslaður á þeim stutta. Þetta er svolítið merkilegt því ekki reykjum við, nokkrir vinir og ættingjar reykja en alls enginn sem er daglegur gestur hér á heimilinu - hvað er það sem fimm ára snáði sér spennandi við reykingar?
Um kvöldið sama dag fórum við í ræktina ég og eldri drengurinn. Hann er farinn að hlakka til að dvelja í Danmörku um jól og áramót. Hann tæpti á því við mig að það væri alltaf svolítið mikið um svona snafsa í jólaveislunum þar og mikið verið að drekka bjór. Held hann hafi verið að kanna viðbrögðin hjá mér en ég sagðist vita það vel, það væri þannig "kúltúr" í Danmörku. Þá sagði hann: En ég get ekkert verið að prófa það því ég er með "Avtal". Þá fattaði ég hvað þessi litli samningur sem við, skólinn og Stefán gerðum í haust skiptir miklu máli, (öllum unglingum í ungdomsskólanum stendur til boða að gera slíkt avtal) en það er yfirlýsing um að þau ætli ekki að reykja, prófa snus eða drekka áfengi. Þetta skrifa allir aðilar undir og skólinn heldur einu eintaki og við einu. Þetta hljómar kannski ferlega lítið en mér þykir það dýrmætt á meðan krakkinn talar um þetta á þessum nótum, hann skrifaði undir þetta og ætlar að standa við sitt. En það er svo fyndið með hann að hann vill hafa stífan ramma, ákveðna rútínu og það liggur við að hann biðji mig um að banna sumt.
Ég held að á milli okkar ríki traust, það er dýrmætt.....er á meðan er.

Sólrún Halla
Úps, ég held ég verði að tala við Björk á eftir í vinnunni, hihi, Strákarnir þínir eru greinilega mikið að velta fyrir sér hlutunum og það er jákvætt. En þegar Þórður Logi verður stór þá efast ég um að hann taki upp á því að reykja dagsdaglega þar sem mjög fáir í umhverfi hans sína honum það dagsdaglega, þú passar bara að hann sé ekki mikið í kringum Björk hahaha, nei bara grín. En eigið góðar stundir
#1
03. desember 2010 klukkan 09:55
Þvílíkur gullmoli hann Þórður og það sem honum dettur í hug, gefðu honum smá Bebbuknús frá mér í dag.
Mér finnst þetta líka frábærar pælingar hjá Stefáni og hann ætlar greinilega að standa við sitt og frábært að hann geti rætt þetta við þig, það er ekkert gefið. En ég kannast við svona ramma-mann ætli þetta fylgi ekki eitthvað afmælisdeginum þeirra og stjörnumerkinu.
Las líka geðvonskubloggið þitt og það er bara hressandi að lesa svona útrás annað slagið, um að gera að fá hana á okkur og ég er sammála Eddu ég sá þig fyrir mér dillandi afturendanum út í loftið HAHAHA
Gangi þér vel í prófalestrinum mín kæra

#2
03. desember 2010 klukkan 10:16
Sú ráðagóða
hæ, það er enginn sem er Þórði Loga líkur í heimspeki: vitlaust að reykja en hún reykir og er smat ekki vitlaus, bara snild. (Lestu sögustundina mín, þetta kveikti s.s. minningar)
Já, svona smaning hef ég heyrt um áður og þetta ættu allir skólar að taka upp. Þetta með ramman, hann er líkur þér drengurinn, mér fannst stundum þú vera fegin ef ég sett mörk.
Þetta eru gulldrengir sem þú átt Sigga mín, allir þrír.

#3
03. desember 2010 klukkan 20:10
heheh góður...held að Þórður Lgi þurfi að fá svona avtal
#4
03. desember 2010 klukkan 22:47