Geðvonskukast.....
02. desember 2010 klukkan 18:48
Af hverju finnst mér þessi prófatími svona agalega leiðinlegur. Að vera á kafi í lestri fyrir próf í desember er eitthvað svo agalega leiðinlegt, mér þykir vorprófin mikið þægilegri og skemmtilegri. Munurinn er nefnilega sá að þá er oftast gott veður, maður fer frekar út og hressir sig við inn á milli, maður veit að það mun verða gott frí eftir vortörnina já maður hefur eitthvað svo mikið til að hlakka til. Núna í desember er kalt, dagurinn er stuttur og eitthvað lítið frí í framhaldinu.....
Og svo ég haldi áfram að væla þá er endalaust mikið að gera hjá Hauk, það er eiginlega ekki hægt að ganga út frá því að maður fái fasta 8 tíma lotu í vinnu (lestri) yfir daginn því það þarf að keyra á leikskóla, sækja á leikskóla, þvo, elda, taka til, halda öllu dótinu gangandi. Þetta annríki kemur þó ekki í veg fyrir að ég fari í ræktina eða út að hlaupa, ó nei - ég held geðheilsunni með því að hreyfa á mér afturendann!!! Því þegar maður situr við lestur allan daginn þá er mjööööög hætt við því að maður detti óvart á kaf í skápana og finni sér eitthvað að maula yfir allan daginn og ekki ábætandi ef maður þarf að fara út í búð eftir prófatörnina til að kaupa stærri föt!!!!
Ég var að hugsa það í dag hvað það hafi verið sem var öðru vísi í fyrra, jú mér hundleiddist auðvitað lesturinn en ég hafði eitthvað sem ég gat látið mér hlakka til, vinkonur mínar voru væntanlegar hingað í helgarheimsókn strax eftir próf, mamma og pabbi komu hingað yfir jólin. Núna er engin heimsókn í kring um jól og áramót og eiginlega hálf ömurlegt að Stefán Snær verður hjá pabba sínum í Danmörku frá 19. des til 4. jan - ég gleðst samt fyrir hans hönd, það er dýrmætt fyrir hann að halda tengslum við föðurfjölskylduna.
JÆJA EN ÞÁ ER ÉG BÚIN AÐ AUSA ÚR MÉR!!! Haukur heppinn að vera ekki heima til að fá alla geðvonskuna yfir sig (kannski er það ástæðan fyrir því að hann er aldrei heima).....
Annars á ég ekki að vera að geðvonskast þetta, ég hef það fínt. Það er annað en bloggvinkona mín sem þarf að horfast í augu við vágest sem er alls ekki velkominn, krabbameinið - helvítis krabbamein!!!! Já mín kæra, ég hugsa mikið til þín 
Frídagur í ræktinni í dag, fer seinnipartinn á morgun annaðhvort í SpinCore eða að hlaupa en þá fer ég líklega á bretti. Frostið er svo bítandi hér þessa dagana, í gærmorgun þegar ég keyrði Þórði á leikskólann var -21°C jebbs, það er ekkert rosalega spennandi að hlaupa úti í svoleiðis frosti - en það er allt hægt. Hálkan er ekki vandamál, ég á gorma á skóna mína síðan á ég á þykkar hlaupabuxur og ullarnærföt, ullarvettlinga, ullarbuff og allar græjur.....það er bara að draga inn andann og skella sér út. Svo á nú að hlýna um helgina, frostið fer niður í svona -10° til -12° á morgun og laugardag og svo niður í -4°og snjókomu á sunnudag og svo fer frostið að herða aftur
Já hér er vetur.

Já hér er vetur. Jóna Rún
Mér finnst mjög gaman að lesa bloggið þitt...líka geðvonskublogg ;)
#1
02. desember 2010 klukkan 19:42
hahah nauðsynlegt að pústa af og til og ekki öfunda ég þig af því að sitja heima og lesa , enn þú rúllar þessu nú upp. Fínt að skella sér aðeins út að hlaupa og fríska upp á sellurnar og skapið :o) og já skáparnir geta verið varasamir í svona törn heheh. Gangi þér vel mín kæra
#2
03. desember 2010 klukkan 08:12