kuldaboli
Hér er ískalt, frostið er mikið, var -11° þegar ég leit á mæli í morgun en það hefur hert síðan þá og spáin gerir ráð fyrir -18° í fyrramálið. Frétti að á Íslandi væru plústölur á hitamælum í dag en ég geri ekki ráð fyrir að sjá svoleiðis tölur hér fyrr en kannski í mars. Já, mér líkar vel að búa við meginlandsloftsslag, þar sem árstíðaskiptin eru skörp og þegar það er vetur, þá er sko vetur. Maður klæðir sig vel, ullarsíðbrókin og ullarsokkarnir eru staðalbúnaður, það að "kose seg" inni með kakó og piparkökur rímar algjörlega við þennan árstíma. Sólin lætur sjá sig yfir miðjan daginn, það brakar í snjónum og svo til að auka enn meir á stemminguna þá eru jólaljósin að tínast upp eitt af öðru í nágrenninu.
Jæja, þá styttist í prófin, ég er í prófi á mánudaginn í næstu viku (6.), svo mánudaginn (13.) og föstudaginn (17.) í vikunni þar á eftir þannig að eiginlega er þetta þriggja vikna törn.
Ég mun sitja að mestu hér heima á þessu tímabili en það er varla líft út í skóla, troðfullt af fólki í öllum lessölum og einhvernvegin hálfgert stress andrúmsloft og ónæði - heima er best
Mun samt sennilega nýta mér skólaaðstöðuna eitthvað um helgar ef mér finnst vera þörf á því að flýja karlana mína.
En hvað skildi vera mikilvægt að hafa í huga þegar setið er langtímum saman og lært fyrir próf? Það má segja að engar töfralausnir séu til, hér er listi yfir þá þætti sem mér finnst mikilvægir og hef í huga (eiginlega gilda þessi ráð hvort sem setið er við nám eða vinnu):
1. Maður á að skapa sér gott vinnuumhverfi svo einbeitingin sé góð. Það getur skipt máli hvernig maður snýr í herberginu sem maður lærir í. Hvort maður situr með bakið í glugga, hvort vinnuborðið er á miðju gólfi eða upp við vegg, hvort stóllinn sé góður, birtan hæfileg og svo framvegis. Mér finnst ótrúlega gott að vinna við eldhúsborðið, það er alveg merkilegt því það skarast á við margar ráðleggingar um að maður eigi einmitt ekki að læra þar sem maður slappar af þ.e. í svefnherbergi, stofu eða eldhúsi.....kannski er þetta vegna þess að ég slappa sjaldan af inní eldhúsi 
2. Standa reglulega upp í 5 til 10 mín á ca 1 til 2 tíma fresti, fá sér kaffi, ganga um.....
3. Muna eftir að borða hollan og góðan mat, það er lífsnauðsynlegt að nærast.
4. Fara í líkamsækt, ekki sleppa því - þó það taki tíma þá er maður mikið hressari á eftir., bara gróði.
5. Forðast nammiát, vera með mandarínur eða eitthvað álíka á kantinum til að grípa í.
6. Ekki sleppa nætursvefninum, góður nætursvefn er lykillinn að velgengni sagði einhver.
Núna eru 10 dagar síðan ég lagðist í kvef og flensuskít, ég hef ekki farið í ræktina og varla hreyft mig síðan föstudaginn 19. nóv úff hvað er langt síðan og er mér nóg um!! Enda held ég að ég sé búin að ná þessu að mestu úr mér og stefni að því að fara í spinning í kvöld en ég er ekkert að taka útiæfingar alveg á næstunni, þarf að passa mig.
Á morgun er 1.des og þá blogga ég aftur og kem með uppgjör nóvember mánaðar og skelli inn desembermarkmiðum.