Ađventa og jólaskap
29. nóvember 2010 klukkan 00:03
Það má með sanni segja að núna um helgina hafi örlað á jólaskapi hjá minni. Í gær sóttum við jólakassan niður í geymslu og grófum upp eina jólaseríu, jóladúk sem yngri sonurinn málaði á í fyrra og einn aðventukertastjaka. Þegar búið var að koma þessu fyrir var arkað niður í bæ til að horfa á ljósin tendruð á jólatrénu sem stendur við ráðhús bæjarins. Það var mjög kalt og smá vindur, svolítið íslenskt bara. Þarna voru tvær stúlkur og ein lúðrasveit sem tóku lagið og arkaði fólk hringinn í kring um jólatréð, afar látlaus samkoma, en gaman samt sem áður en þó einkennilegt að gera ekki meira úr þessu. Hefði verið næs að geta keypt kakóbolla t.d. af einhverjum félagasamtökum, íþróttafélagi, skátum eða.....vera kannski með smá jólamarkað. Þarna voru ca 100 manns eða um 0,7% af íbúum sveitarfélgsins og þó ég hafi mistalið þá hefði varla munað meira en 100 manns og þá erum vð komin upp í 200 manns eða 1,3%
Eftir að hafa verið viðstödd þennan viðburð fórum við og keyptum rauð kerti í aðventukertastjakann
Í dag héldum við áfram að jólast. Tókum lestina til Osló eða nánar tiltekið í Nordberg kirkju. Þar var aðventusamkoma íslenska safnaðarins í Noregi. Við mættum snemma því Stefán og önnur fermingarbörn áttu að aðstoða við undirbúning og framkvæmd samkomunnar.
Ískórinn söng, nýstofnaður barnakór söng, Pálmi Gunnarsson söng og spilaði ásamt hljómsveit, Davíð Þór Jónsson hélt ræðu og sr. Arna sagði jólasögu. Á eftir var kaffi í boði íslendingafélagsins.
Þetta var mögnuð stund í alla staði, maður klökkanaði undir "Ísland er land þitt" sem Pálmi söng ásamt Ískórnum af mikilli innlifun...úff ég fékk kökk í hálsinn og táraðist.
(Ég bloggaði ekkert um daginn um upplifun mína í messunni sem við fórum í fyrir þremur vikum. Það var allraheilagra messa, látinna minnst og lífinu fagnað. Mjög sterk upplifun, fallegir sálmar sungnir og kveikt á einu kerti fyrir hvern íslending sem lést í Noregi síðasta árið. En þetta var útúrdúr.)
Aðventustundin í dag var mjög hátíðleg og skemmtileg, við hittum fullt af íslendingum sem við þekkjum hér, Þórður hitti vini sína, Stefán hitti vini sína og allir glaðir og ánægðir. Haukur hefur verið að vinna heilmikið þessa helgi en komst í kirkjuna og kaffið og fór svo aftur að vinna. Hér snjóaði smá í gær og svo hefur snjóað smá í dag - enn jólalegra
Við mæðginin tókum lestina heim, vorum samferða frænkum okkar þeim Vilborgu og Maríu með T bana niður á OsloS. Þar skildu leiðir og við héldum í sitthvora áttina, við með lest, þær með strætó. Gunna kom með okkur heim en við buðum henni í soðna íslenska ýsu, kartöflur og smjör og tók Þórður Logi til piparkökur í eftirmat.
Já góður dagur að kveldi kominn - fyrsti sunnudagur í aðventu og við búin að kveikja á spádómskertinu
Eftir að hafa verið viðstödd þennan viðburð fórum við og keyptum rauð kerti í aðventukertastjakann

Í dag héldum við áfram að jólast. Tókum lestina til Osló eða nánar tiltekið í Nordberg kirkju. Þar var aðventusamkoma íslenska safnaðarins í Noregi. Við mættum snemma því Stefán og önnur fermingarbörn áttu að aðstoða við undirbúning og framkvæmd samkomunnar.
Ískórinn söng, nýstofnaður barnakór söng, Pálmi Gunnarsson söng og spilaði ásamt hljómsveit, Davíð Þór Jónsson hélt ræðu og sr. Arna sagði jólasögu. Á eftir var kaffi í boði íslendingafélagsins.
Þetta var mögnuð stund í alla staði, maður klökkanaði undir "Ísland er land þitt" sem Pálmi söng ásamt Ískórnum af mikilli innlifun...úff ég fékk kökk í hálsinn og táraðist.
(Ég bloggaði ekkert um daginn um upplifun mína í messunni sem við fórum í fyrir þremur vikum. Það var allraheilagra messa, látinna minnst og lífinu fagnað. Mjög sterk upplifun, fallegir sálmar sungnir og kveikt á einu kerti fyrir hvern íslending sem lést í Noregi síðasta árið. En þetta var útúrdúr.)
Aðventustundin í dag var mjög hátíðleg og skemmtileg, við hittum fullt af íslendingum sem við þekkjum hér, Þórður hitti vini sína, Stefán hitti vini sína og allir glaðir og ánægðir. Haukur hefur verið að vinna heilmikið þessa helgi en komst í kirkjuna og kaffið og fór svo aftur að vinna. Hér snjóaði smá í gær og svo hefur snjóað smá í dag - enn jólalegra
Við mæðginin tókum lestina heim, vorum samferða frænkum okkar þeim Vilborgu og Maríu með T bana niður á OsloS. Þar skildu leiðir og við héldum í sitthvora áttina, við með lest, þær með strætó. Gunna kom með okkur heim en við buðum henni í soðna íslenska ýsu, kartöflur og smjör og tók Þórður Logi til piparkökur í eftirmat.Já góður dagur að kveldi kominn - fyrsti sunnudagur í aðventu og við búin að kveikja á spádómskertinu

http://jonalindk.bloggar.is
Jóna Lind
já þetta var notaleg og hátíðleg stund í kirkjunni, Pálmi var frábær og já maður fékk alveg gæsahúð við sönginn. Hjá okkur var líka kósí stund þegar heim var komið, prófaði að elda ribbe, kveikt á aðventukertinu og smákkur í eftirrétt. Hafðu það gott í dag mín kæra :o)
#1
29. nóvember 2010 klukkan 10:33
greinilega notaleg helgi, njótið aðventunnar þrátt fyrir miklar annir
#2
29. nóvember 2010 klukkan 11:56