Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

kjólablogg

26. nóvember 2010 klukkan 16:09

Það verður seint sagt um miðbæinn hér í Ås státi af mörgum búðum. Þær eru þó nokkrar og verð ég að segja að hér finn ég alltaf eitthvað spennandi. Það er t.d. gullsmiður, heilsubúð, gleraugnabúð, skóbúð, málningarbúð, myndavélabúð, hjólabúð,  og kaupfélag (Erik Johansen) þar sem er dótadeild, búsáhaldadeild, snyrtivörur og allskonar dóterí, hér er líka steinabúð, vefnaðavörubúð, blómabúð og að lokum uppáhaldsbúðin mín. Í uppáhaldsbúðinni minni fæst garn og föt. Ég sá kjól í vor í búðinni minni sem ég heillaðist af og hef mikið hugsað um, svolítið flippaður, litríkur, stutterma og náði niður á hné, úr bómull. Ég keypti kjólinn ekki því ég vissi að þetta merki (sjá hér) væri alltaf með þennan stíl en samt ekki alltaf í sömu útfærslu. Áðan tók ég mér göngutúr niðrí bæ, frelsinu fegin, búin að skila síðasta verkefni annarinnar með fyrirlestri og bara ánægð með mig. Ég kíkti í blómabúðina og svo í búðina mína, sá kjól frá spænska merkinu, hnésíður bómullarkjóll með síðum ermum, svartur með litríki ísaumaðri mynd og nú gekk ég lengra en að horfa - ég mátaði...........og.....
........... jamm ég lét vaða og keypt´ann!!! 

Jóna Lind KristjánsdóttirFlott hjá ţér...stundum verđur mađur ađ láta hluti eftir sér :o)
#1
26. nóvember 2010 klukkan 16:41
 
Ţórunn H.
Þessi búð er æðisleg, ég eyddi þar ómældum tíma.....
Ég er sannfærð um að kjóllinn klæði þig vel vinkona - á ekki að skella inn mynd?
#2
26. nóvember 2010 klukkan 17:02
 
Bebba
Geðveikt, sammála Þórunni... ég vil sjá mynd!!!
#3
26. nóvember 2010 klukkan 21:01
 
Sigga Júlla
Kíkið á feisbúkk
#4
26. nóvember 2010 klukkan 21:03

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.