hef þetta að segja í dag
25. nóvember 2010 klukkan 08:25
Hef mikið velt fyrir mér tilgangi lífsins að undanförnu. Ég kemst alltaf að sömu niðurstöðu. Maður á að lifa og njóta, halda utan um þá sem manni þykir vænt um því það gæti allt í einu orðið of seint. Fékk leiðinlegar fréttir í vikunni af þremur manneskjum sem allar verða að taka á honum stóra sínum, sendi þeim kraft og hugrekki til að takast á við erfiða tíma. Erfiðleikar þroska mann, það er kostur.
Eins og ég hef margoft komið inn á hér á bloggsíðunni þá skipta veraldlegir hlutir engu máli þegar heilsan og fjölskyldan er annars vegar. Stórt hús, flottur bíll, allskonar "stöðutákn" skipta engu máli í samanburði við að eiga fjölskyldu, vini og góða heilsu.
Annars er allt gott að frétta, er öll að koma til eftir veikindin. Haukur og strákarnir hressir og við unum okkur (oftast) vel hér á 45 fermetrunum okkar. Ég er reyndar með óþarfa heimtufrekju sem stangast algjörlega á við það sem ég segi hér fyrir ofan, langar rosalega til að búa á 60 fermetrum, það væri deiligt!!!

Erla perla
Já, ótrúlega er ég sammála þér. Svo fellur allt lífið eins og spilaborg hjá yndislegu fólki í kringum mann, og maður verður að minna sig á akkúrat þetta.
#1
25. nóvember 2010 klukkan 08:49
maður á að vinna til að lifa ekki lifa til að vinna, veraldleg gæði eru einskis virði í samanburði við allt hitt.
#2
25. nóvember 2010 klukkan 09:46
Sólrún Halla
Vona að þú hafir það gott mín kæra! Maður á endilega að lifa lífinu eins og maður vill og helst ekki að eyða of mikilli orku í þá hluti sem skipta engu máli. Þú veist að þú getur alltaf haft samband ef þig vantar eitthvað spjall! Þú ert svo sterkur karakter sem heldur öðrum uppi, ekki gleyma að hugsa um sjálfa þig Sigga mín. Hafðu það nú gott og vona að þessir einstaklingar komist klakklaust i gegnum erfiðleika sína!
#4
25. nóvember 2010 klukkan 10:56
Þórhildur
Hef engu við þetta að bæta, hjartanlega sammála Sollu!!
#5
25. nóvember 2010 klukkan 14:05