dorm, skype og atvinnumöguleikar....
22. nóvember 2010 klukkan 22:20
Ég er búin að liggja í bælinu í dag. Hafði fundið fyrir eymslum í hálsi og smá kvefdrullu í hálfan mánuð en samt ekkert rosalegt, verið kannski með stíflað nef á morgnana og hálf rám en svo hefur það bara lagast þegar liðið hefur á daginn. Þegar ég fór í jólagjafainnkaupin á laugardaginn hnerraði ég þessi ósköp, fann að ég var að kvefast. Í gær var ég alveg stífluð og hálf kalt og í dag helltist yfir mig hiti og beinverkir, semsagt mér tókst ekki að bægja þessari óþverra flensu frá mér
Ég er nú samt svo heppin að ég var búin að senda frá mér kaflann minn í verkefninu sem á að skila á föstudaginn, á bara eftir að hitta hópinn til að fínpússa verkið í heild og búa til fyrirlestur. Og svo ég haldi áfram í Pollýönnuleiknum þá er mun skárra að veikjast núna heldur en í prófatörninni
Ég hef nýtt daginn í dag semsagt til að liggja og dorma upp í rúmi, spjalla við vini og ættingja á msn og skype þess á milli og svo hef ég aðeins spáð í atvinnumöguleika.....já, já, alltaf verið að pæla hérna megin.

Magga
Vonandi batnar þér fljótt mín kæra...vona líka að atvinnumöguleikarnir staðsetji þig nálægt eða á suðvestur horninu ;)
#1
22. nóvember 2010 klukkan 22:36