Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

OG ÞAR HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ!!!!

21. nóvember 2010 klukkan 21:22
Ég get ekki skilið vælið í sumu fólki. Það kvartar yfir peningaleysi og allir svo blankir, ótrúlega margir í greiðsluvanda en vúbbbbs ég hef heyrt að það séu álíka mörg heimili í greiðsluvanda árið 2010 og árið 2004 hm hvernig getur það verið? Á sama tíma eykst eftirspurnin eftir lýtaaðgerðum, fólk lætur sig dreyma um róbótaryksugur til að létta sér störfin á sama tíma sem það hefur ekki efni á að gera neitt....skil ekki svona!! Og þegar það virðist vera að fólk sé að lepja dauðann úr skel þá er það að éta sig í hel, allavega hættir þjóðin ekki að fitna. 
Dragið fram sópinn ef ykkur vantar eitthvað að gera.
Étið minna, það svelta börn í Afríku.
Hugleiðið þegar þið kaupið enn eitt fótanuddtækisígildið hvað framleiðslan eða eyðingin á draslinu kostar okkur og umhverfið.

Já, engar heimildartilvitnanir í dag - þetta blogg byggir á minni túlkun á fréttum, vinsælustu myndbrotunum hjá íslenskum vefmiðlum, auglýsingum og statusum á Feisbúkk.
....og þar hafið þið það!!!
 
 
Anna
Ábending um góðan íslenskan þátt LANDINN á RÚV
#1
21. nóvember 2010 klukkan 22:48
 
edda
Sammála öllu sem þjakar þig nú Sigga mín.
Ótrúlegt væl í sumu fólki og ótrúlegt hvað fólk t.a.m. forgangsraðar vitlaust í allri þessari "kreppu". Samanber að koma akandi í Fjölskylduhjálp (leggur bílnum hæfilega langt frá). Kaupir bensín fremur en að kaupa mat ofan í börnin sín o.s.frv. Sem betur fer heyrir maður þetta ekki í sínu nærumhverfi. Held að út á landi lið sé miklu betur í stakk búið undir þrengingar því það hefur alltaf þurft að spá í það hvað það gerir við aurinn sinn.

Jafnframt er ég sammála að Landinn er rosalega góður þáttur. Endilega horfið á hann. Viss um að þið hafið bæði gaman að honum.
#2
22. nóvember 2010 klukkan 00:09
Jóna Lind KristjánsdóttirSammála, forgangsröðin er orðin svo klikkuð hjá mörgum
p.s ég sá líka landann og var m.a.s í honum...göngugarpurinn mikli frá Ísafirði er tengdapabbi minn :o)
#3
22. nóvember 2010 klukkan 00:46
 
Jóna Rún
eins og talað út úr mínu hjarta frænka! Ef þú bara vissir hvað margir hérna heima eru að fara í verslunarferðir til Bostons! Og eftir helgina í Reykjavík þar sem voru fullt af búðum troðfullar af allskonar drasli og troðfullar af fólki spurði ég sjálfan mig reglulega hvar þessi kreppa öll væri. Er hún kannski bara í fjölmiðlum? Eða ná þeir að fela hana svona vel? ég hef aldrei upplifað kreppu en það sem maður hefur lesið um hana þá finnst mjög erfitt að bera saman núverandi ástand á Íslandi saman við það. En það er víst gjaldeyriskreppa...en er það ekki allt annað?
#4
22. nóvember 2010 klukkan 02:06
 
Magga
Margt rétt í þessu hjá þér Sigga Júlla...held að fólk líti þessa "kreppu" mjög misjöfnum augum. Það eru allt of margir sem eru í virkilegum erfiðleikum á meðan sumum finnst skelfilegt að þurfa að selja dýra bílinn sinn og fá sér ódýrari bíl sem eyðir minna..."stöðutáknið" þar með farið og þar af leiðandi komin kreppa hjá þessu fólki. Svo eru náttúrulega sumir sem höfðu það rosalega gott fyrir haustið 2008 og lifðu/eyddu samkvæmt því, misstu svo kannski vinnuna eða lækkuðu í launum og sitja í súpunni þess vegna.

Við á þessu heimili erum svo sem ekki í neinum vandræðum, getum keypt vetrardekk undir bílinn, mat, borgað reikninga og svoleiðis, en ég finn alveg að við megum ekkert eyða miklu í einhverja bölvaða vitleysu. En ekki þar fyrir...ég læt mig alveg dreyma um ryksuguróbot. Dettur hins vegar ekki í hug að kaupa svoleiðis þar sem ég á ágæta handstýrða ryksugu sem virkar ágætlega þegar ég nenni að nota hana. Hitt væri náttúrulega mjög ljúft, að hafa bara einhverja græju sem sér um þetta fyrir mig. Það kostar hins vegar ekkert að láta sig dreyma, svo framarlega sem maður verður ekki þunglyndur og í fýlu af því að maður á ekki kost á því að fá sér það sem mann dreymir um. Þá getur maður hins vegar alltaf safnað sér fyrir því. ;)
#5
22. nóvember 2010 klukkan 02:25
Ég er sammála þér Sigga, eins og svo oft áður!
Það er varla talað um annað í útvarpinu þessa dagana en langar biðraðir hjá Fjölskylduhjálpinni, fólk þarf að sækja sér mat þangað. Ég held að það væri lag að ganga á röðina og sjá hversu margir reykja... það er eitt bruðlið sem ég skil ekkert í. Ef manneskja reykir einn pakka á dag er hún að eyða uþb 30 þúsund krónum í tóbak á mánuði, það eru nokkrar bónusferðir!
En það er staðreynd að bil á milli ríkra og fátækra er að stækka á Íslandi, Ríkisskattstjóri birti fyrr í haust lista yfir fólk sem á mikla peninga (ég man ekki alveg töluna ætli það hafi ekki verið þeir sem eiga meira en 100 milljónir) nema hvað listinn hefur ALDREI verið jafn langur, það er sem sagt fullt af fólki sem á fullt af peningum á Íslandi í dag, á meðan það er líka fullt af fólki sem á enga peninga.
Það er líka alveg satt hjá þér að fólk sem er í vandræðum er ekkert endilega að breyta lífsmynstri sínu... það heldur áfram að gera það sem það var vant, amk mjög margir. Jólatónleikar seljast upp á mettíma, utanlandsferðum fer fjölgandi aftur, neysla minnkar ekki... við erum ennþá að kaupa sama draslið þó það sé kreppa!
#6
22. nóvember 2010 klukkan 12:30
 
Þórhildur
Er raunveruleg kreppa á Íslandi ?? Svar mitt er einfaldt NEI. Lítum bara á söguna og til annara þjóða sem hafa lendt í raunverulegri kreppu og berum okkur saman við þær. En vissulega eru einhverjir sem hafa það "skítt" en það er bara alltaf þannig á öllum tímum.
#7
22. nóvember 2010 klukkan 14:06
 
Sólrún Halla
Ok ég skal hætta að væla yfir þessari kreppu!! hihi, alltaf gott að fólk tjáir sig með það sem það er að velta fyrir sér. Ég dýrka þetta málfrelsi á Íslandi, bara gaman af því, en ég er alveg sammála ykkur í því að það eru alltof margir að nýta sér hluti sem mér finnst þeir ekki eiga rétt á og þá er minna fyrir þá sem virkilega þurfa á því að halda!!
#8
24. nóvember 2010 klukkan 02:43

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.