Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

helgin....

21. nóvember 2010 klukkan 11:10

Við höfðum verið að gæla við að fara eitthvert og leyta að skíðafæri en ákváðum að fresta því aðeins, bíða eftir aðeins meiri snjó. Verja helginni hér heima við í staðin.

Við fengum gesti í föstudagspizzuna, Björn, Bríet og dætur og að auki kom AuPairinn þeirra hann Gústi. Ég gerði hér fjórar stórar pizzur, smá tilraunastarfssemi í gangi en það telst alltaf tilraunastarfsemi ef breytt er út af pepperonivananum. Það var reyndar ein með pepperoni og osti, önnur með pepperoni, lauk, papriku, sveppum, ólífum og osti. Þriðja var með tacosósu (í stað pizzasósu), tacokrydduðu hakki, papriku og osti, síðan muldi maður smá doritos yfir ef maður vildi. Sú fjórða var með grænu pestói (í stað pizzasósu), kotasæla kom þar næst, þá spínat, ólífur og að lokum ostur, grófur pipar og maldonsalt. Síðan var ísterta í desert. Sannkölluð veisla. 

Í gær byrjuðum við daginn á að horfa á Útsvar frá kvöldinu áður, en það er eiginlega það eina sem ég nenni að horfa á í íslenska sjónvarpinu. Síðan skelltum við Haukur okkur í SuperSpinPump tíma í Ås treningsenter. Þá var mjög flottur 45 mínútna spinningtími og BodyPump á eftir í 45 mínútur. Ég og Stefán Snær fórum svo í verslunarferð í Skistorsenter ásamt Bríet og náðum að versla allar jólagjafirnar sem eiga að fara heim til Íslands, fyrir utan gjafirnar til mömmu, pabba og tengdamömmu. Kvöldinu eyddi ég svo í að pakka inn.

Í dag ætla ég að sitja við lestur og lærdóm. Ég hafði líka hugsað mér að taka skokktúr í góða veðrinu en hér er frostið ca -2° og auðvitað logn og snjóhula. Veit samt ekki hvað verður er að fyllast af kvefi en göngutúr verður það í það minnsta. 

 
Jóna Lind
Fín helgi...já það borgar sig að bíða eftir aðeins meiri snjó fyrir skíðin, ég hef ekkert farið heldu á skíði en nota helgina í að hlaupa. Þarf svo að fara að setja í gírinn til að klára jólagjafir til Íslands...gangi þér vel með námslesturinn í dag :o)
#1
21. nóvember 2010 klukkan 13:18

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.