Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Tilgangsleysi og tímaeyðsla

18. nóvember 2010 klukkan 09:28


Ég á eftir að skila einu hópaverkefni en skil með kynningu verða á föstudaginn í næstu viku. Við kláruðum stærsta hluta verkefnisins (s.k. bakgrunnsnotat) í lok október en hittumst í síðustu viku til að ákveða hvernig við mundum leysa afganginn af verkefninu sem er s.k. "Behandlingsplan" þ.e.a.s. við eigum að koma með tillögur að nýtingu á ákveðnu skógarsvæði með fjölnytjar í huga - þurfum að ígrunda þetta út frá hagfræði, vistfræði, menningar og félagslegum þáttum. Við funduðum þarna í síðustu viku og deildum niður verkefnum. Svo funduðum við aftur í gær og ég hélt að það væri til að við sýndum þau uppköst sem við værum með og leiðrétta ef einhver væri kominn af leið. Það var misskilningur, ég get svo svarið það, það var farið að ræða málin fram og til baka, aftur á bak og áfram, mér fannst eins og ég væri stödd á sama fundi og ég var á í síðustu viku. Svo til að toppa fundinn þá sagði einn úr hópnum, við verðum að deila verkefnunum niður!!!!! Svo var ég spurð hvaða kafla ég vildi taka, ég sagðist hafa haldið að við hefðum skipt með okkur verkum í síðustu viku.....uuuuu jú reyndar en það var meira svona bara til að spá í þetta Yell EN ég var allavega byrjuð á mínum kafla og sagðist vilja halda mig við hann ef þeim væri sama, jú jú það var í góðu lagi og allir voða hissa að ég væri búin að setja niður á blað smá texta. Nú er komið "deadline" það eiga allir að vera búnir með sína kafla á mánudaginn og ég ætla að vona að það verði allir búnir því ekki nenni ég að eyða enn einum klukkutímanum í fund um það sama og síðast. Mikið skil ég fólk sem ræðir um tilgangsleysi funda!!!

 
Sólrún Halla
Þetta er óþolandi í hópaverkefnum, búið að skipta verkum og þegar maður hefur tíma vill maður byrja! En svona er þetta og verður alltaf í hópverkefnum. En þú massar þetta eins og allt annað mín kæra og svo fara jólin bráðum að koma og þá veit ég að þú verður í essinu þínu með baunasúpu og fleira!

Kærar kveðjur í bæinn
#1
18. nóvember 2010 klukkan 10:33
 
Svona er lífið þegar á að vinna saman að einhverju, endalaust kjaftæði - það þarf að vera stjórnandi sem segir fyrir verkum og svo rest sem vinnur sinn hluta hver - eins og margt snjallt getur komið út úr góðri og vel stjórnaðri hópvinnu, þá er hún því miður oftast sóun á dýrmætum tíma þeirra sem eru á kafai að vinna verkefnin sín
Einstaklingsframtakið LIFI!!!
#2
18. nóvember 2010 klukkan 18:59

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.