Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

ekki alveg eftir planinu en...

15. nóvember 2010 klukkan 21:56
Dagurinn byrjaði hjá mér þegar síminn hringdi og Haukur fór inní Osló að moka, eða eitthvað um klukkan þrjú í nótt....fljótlega eftir að hann var farinn og ég farin að festa svefn aftur kom lítill kútur uppí, við sváfum þar til vekjaraklukkan hringdi um hálf sjö. Þá var snjókoma úti sem átti bara eftir að þéttast. Ég ákvað að vera ekkert að þvælast til Kroer með drenginn á leikskólann, var ekki að þora vegna þess að vetradekkin voru enn niður í geymslu Undecided Stefán Snær var slappur um helgina og var heima í dag þannig að eiginlega var dagurinn í dag ansi líkur deginum í gær. Haukur kom heim fyrir hádegi og náði góðum svefni yfir miðjan daginn.
Ég sinnti annars lærdómi á milli þess sem ég skemmti drengjunum. Fyrirlestur seinnipartinn og dekkjaskiptasnúningar urðu til þess að ég komst ekki í SpinPump tímann minn. Síðan var komið myrkur og kvöld. Haukur fór aftur til Osló eftir kvöldmat, jamm það vetrar snemma, allavega fór moksturinn, söltunin og malaríborningurinn ekki svona skarpt af stað í fyrra. OG vá hvað ég er glöð að núna vitum við að Haukur á fastar fríhelgar í vetur Cool Spurning um að hafa upp á svæði með skíðagöngubrautum um næstu helgi....já þá er fríhelgi Laughing
 
Jóna Lind
Já það snjóaði svolítið í gær ...spurning hvort þetta er sýnishorn eða að veturinn sé byrjaður. Við höfum ekkert farið á skíði, ekkikomin nægur snjór á skíðasvæðinu okkar en ef maður keyrir lengra upp í fjöllin er það hægt. Formaðurinn í skíðadeildinni hér talaði um að það væri hægt ð skíða í Ringkollen, held að það sé í Nittedal. Helgin hjá okkur verður þéttskipuð í jólamarkaðsstúffi í báðum klúbbunum (stelpurnar eru í sitt hvorum skíðaklúbbnum) en vonandi gefst tími til að skoða skíðasvæði.
#1
16. nóvember 2010 klukkan 08:19

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.