Sæl
alltaf er ég með misgáfuleg komment...
Það sem þú segir um kaffi er örugglega allt rétt, við vitum jú að koffín er örvandi og getur einmitt haft þessi áhrif á líkamann. EN ég las grein í lífstílsbalði fyrr í haust, ég keypti blaðið sérstaklega vegna þess að það fjallaði sérstaklega um kaffi. Þetta er danskt blað sem talaði um kosti og galla kaffis, einmitt þetta að kaffi er örvandi, getur haldið okkur vakandi og jafvel valdið örum hjartslætti. Hinsvegar bentu þeir á fjölmargar rannsóknir (sem ég tek fram að ég hef ekki leitað uppi til þess að staðfesta það sem þetta tímarit hélt fram) en þeir sýndu fram á fjölmargar mismunandi rannsóknir þar sem kom fram að kaffidrykkja væri meinholl. Hún getur minnkað líkur á gallsteinum, meltingarfærasjúkdómum og mörgu fleiru. Rannsóknirnar voru mjög margar sænskar, það kom líka fram í greininni að norðurlandaþjóðirnar drekka sérstaklega mikið kaffi og þá finnar mest. Í upptalningum á hvillum sem kaffidrykkjan hafði jákvæð áhrif á var tekið fram hvað það þurfti marga bolla á dag stundum var min og stundum líka max. Stundum kom það fram að það væri ekki koffínið sem væri að hafa þessi jákvæðu áhrif heldur eitthvað annað sem þeir höfðu þó ekki fundið sérstaklega hvað væri í kaffinu. En að koffínlaust kaffi ætti að hafa sömuáhrif. En það var mjög mismunandi.
Þetta var amk mjög fróðleg grein og yfirgripsmikil hún var í heilsutímariti sem fjallar um hreyfingu og hollt mataræði og það var vitnað í rannsóknir svo ég held að hún sé ekkert endilega mjög vitlaus. Hisvegar getur vel verið að á meðan kaffidrykkjan hefur jákvæð áhrif á einn hlut er hún að sama skapi að hafa neikvæð á annann... að gæti vel verið. Í greininni var samt bara fjallað um neikvæða þætti eins og svefnleysi og að sumir þoli ekki þessa örvun og því fari kaffið illa í þá.
Ég ætti nú kannski að skanna greinina og senda þér svona til gamans.
Ég tek það líka fram að ég drakk óhóflega mikið kaffi (eða svona að mér fannst) en hætti mjög snögglega núna í haust einfaldlega vegna þess að mig langaði ekki að drekka meira kaffi en það var samt eftir að ég las greinina góðu!!!
Hafðu það gott mín kæra og gangi þér vel í prófaundirbúningi og svo jóladúlli, hlakka til að hitta þig næst hvenær sem það verður og drekka með þér gott TE
knús í kotið
kaffi
14. nóvember 2010 klukkan 14:30
Ég var kannski full harðorð í síðasta bloggi en það er stundum nauðsynlegt, ég nota nefnilega bloggið sem aðhald og þá fyrir mig. Enda neyðir enginn ykkur til að lesa þetta.
Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér kaffidrykkju. Málið er að ég er að drekka kannski full mikið kaffi og er að hugleiða það að fara að gera eitthvað í því. Ég er alls ekki að hugsa um að sleppa því alveg, nei, nei, mér þykir það svo gott að mér dettur það nú ekki í hug. Spurningin er að skera niður í heildarfjölda bolla á dag. Ég er að drekka svona 4 til 10 bolla á dag....jebb, svolítið mikið. Þannig að nú hugleiði ég að skera niður í tvo bolla á dag. Einn góðan á morgnana og einn góðan seinnipartinn.
Það ætti ekki að reynast mér erfitt því hér heima er enginn annar sem er í kaffinu, Haukur hætti í kaffinu í janúar 2006 og hefur ekki nokkra þörf fyrir það, heldur sig við te, ávaxtasafa og vatn. Ég er mjög dugleg í vatninu en spurningin er að þegar mig langar í eitthvað annað að drekka að fá mér þá jurtaseyði eða engifer-sítrónudrykk sem er mjög heilsusamlegur.
En af hverju að skera niður í kaffidrykkju, eru einhverjar rannsóknir sem segja að það sérstaklega sé skaðlegt heilsunni? Hvað með hina koffíngjafana? Nei ekki að maður eigi að "kötta" út allt kaffi, eftir því ég best veit. Það eru hins vegar fullt af "kellingarbókum" sem segja að kaffi sé skaðlegt heilsunni og þess vegna eigi maður að sleppa því alveg en ef þið finnið rannsóknir sem sýna án efa að um skaðleg áhrif kaffis sé að ræða þá megið þið láta mig vita.
Mjög stórum koffínskömmtum geta fylgt ýmis líkamleg og andleg óþægindi. Koffín er náttúrulegt, örvandi efni það finnst ekki aðeins í fræjum kaffiplöntunnar heldur í um það bil sextíu plöntutegundum en magn koffíns í þessum plöntum er mjög mismunandi (kakóbaunir, telauf og fl.). Það er ýmislegt sem bendir til að of mikið magn af koffíni, til dæmis þrír til átta bollar af kaffi, geti haft ýmis óþægileg áhrif á líkamann í formi skjálfta, hjartsláttartruflana, svima og höfuðverks en koffínið hefur eins og áður hefur komð fram örvandi áhrif. Hjá mér eru það höfuðverkur og bakflæðiseinkenni það sem hrjá mig og fær mig til að endurskoða kaffineysluna.
Rannsóknir hafa sýnt að neysla sem er umfram 400 mg af koffíni á dag, sem samsvarar um það bil þremur kaffibollum, getur aukið hættuna á ýmsum kvillum. Þannig að ef ég sker niður í kaffineyslu og leyfi mér 2 bolla á dag þá ætti ég að finna mun......eða er það ekki
Athugið að ýmsir heilsudrykkir innihalda koffín og það verður maður líka að hafa í huga og ekki má gleyma venjulegt telauf af terunnanum Camellia sinensis inniheldur líka koffín og það þýðir að við verðum líka að passa okkur á að drekka ekki umfram þessi 400 mg af koffíni á dag í formi venjulegs tes.
Það er líka áhugavert að velta því fyrir sér hvað kaffi er mikilvægt í hagkerfi heimsins, pælið í því að það er næst algengasta verslunarvaran á eftir hráolíu. Getur verið að það eigi sér stað spilling í kaffirannsóknum eins og ýmsum lyfjarannsóknum - það er kannski ekkert sérstakelga hagkvæmt ef allir myndu hætta að versla kaffi.....
Ég er búin að vera hálfslöpp síðustu daga, smá hitavella í mér í gær, hálsinn viðkvæmur og örlítið kvef
"Karlarnir" mínir eru allir með einhvern smá hósta en alveg sprækir sem betur fer. Það hefur snjóað aðeins síðustu daga og hefur Haukur farið þrjár nætur í röð til Osló að salta, kústa og moka sína leið. Nú eru í rauninni bara tvær kennsluvikur eftir í skólanum á þessari önn, þrjár vikur í fyrsta próf og ótrúlega stutt í jólin. Við erum að leggja síðustu hönd á jólagjafirnar sem eiga að fara til Íslands þannig að þær verða komnar úr húsi fyrir aðventu
Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér kaffidrykkju. Málið er að ég er að drekka kannski full mikið kaffi og er að hugleiða það að fara að gera eitthvað í því. Ég er alls ekki að hugsa um að sleppa því alveg, nei, nei, mér þykir það svo gott að mér dettur það nú ekki í hug. Spurningin er að skera niður í heildarfjölda bolla á dag. Ég er að drekka svona 4 til 10 bolla á dag....jebb, svolítið mikið. Þannig að nú hugleiði ég að skera niður í tvo bolla á dag. Einn góðan á morgnana og einn góðan seinnipartinn.
Það ætti ekki að reynast mér erfitt því hér heima er enginn annar sem er í kaffinu, Haukur hætti í kaffinu í janúar 2006 og hefur ekki nokkra þörf fyrir það, heldur sig við te, ávaxtasafa og vatn. Ég er mjög dugleg í vatninu en spurningin er að þegar mig langar í eitthvað annað að drekka að fá mér þá jurtaseyði eða engifer-sítrónudrykk sem er mjög heilsusamlegur.
En af hverju að skera niður í kaffidrykkju, eru einhverjar rannsóknir sem segja að það sérstaklega sé skaðlegt heilsunni? Hvað með hina koffíngjafana? Nei ekki að maður eigi að "kötta" út allt kaffi, eftir því ég best veit. Það eru hins vegar fullt af "kellingarbókum" sem segja að kaffi sé skaðlegt heilsunni og þess vegna eigi maður að sleppa því alveg en ef þið finnið rannsóknir sem sýna án efa að um skaðleg áhrif kaffis sé að ræða þá megið þið láta mig vita.
Mjög stórum koffínskömmtum geta fylgt ýmis líkamleg og andleg óþægindi. Koffín er náttúrulegt, örvandi efni það finnst ekki aðeins í fræjum kaffiplöntunnar heldur í um það bil sextíu plöntutegundum en magn koffíns í þessum plöntum er mjög mismunandi (kakóbaunir, telauf og fl.). Það er ýmislegt sem bendir til að of mikið magn af koffíni, til dæmis þrír til átta bollar af kaffi, geti haft ýmis óþægileg áhrif á líkamann í formi skjálfta, hjartsláttartruflana, svima og höfuðverks en koffínið hefur eins og áður hefur komð fram örvandi áhrif. Hjá mér eru það höfuðverkur og bakflæðiseinkenni það sem hrjá mig og fær mig til að endurskoða kaffineysluna.
Rannsóknir hafa sýnt að neysla sem er umfram 400 mg af koffíni á dag, sem samsvarar um það bil þremur kaffibollum, getur aukið hættuna á ýmsum kvillum. Þannig að ef ég sker niður í kaffineyslu og leyfi mér 2 bolla á dag þá ætti ég að finna mun......eða er það ekki
Athugið að ýmsir heilsudrykkir innihalda koffín og það verður maður líka að hafa í huga og ekki má gleyma venjulegt telauf af terunnanum Camellia sinensis inniheldur líka koffín og það þýðir að við verðum líka að passa okkur á að drekka ekki umfram þessi 400 mg af koffíni á dag í formi venjulegs tes.Það er líka áhugavert að velta því fyrir sér hvað kaffi er mikilvægt í hagkerfi heimsins, pælið í því að það er næst algengasta verslunarvaran á eftir hráolíu. Getur verið að það eigi sér stað spilling í kaffirannsóknum eins og ýmsum lyfjarannsóknum - það er kannski ekkert sérstakelga hagkvæmt ef allir myndu hætta að versla kaffi.....
Ég er búin að vera hálfslöpp síðustu daga, smá hitavella í mér í gær, hálsinn viðkvæmur og örlítið kvef

"Karlarnir" mínir eru allir með einhvern smá hósta en alveg sprækir sem betur fer. Það hefur snjóað aðeins síðustu daga og hefur Haukur farið þrjár nætur í röð til Osló að salta, kústa og moka sína leið. Nú eru í rauninni bara tvær kennsluvikur eftir í skólanum á þessari önn, þrjár vikur í fyrsta próf og ótrúlega stutt í jólin. Við erum að leggja síðustu hönd á jólagjafirnar sem eiga að fara til Íslands þannig að þær verða komnar úr húsi fyrir aðventu

Vonandi ertu að hressast af þessu flensuskít...oft verra að vera slappur lengi heldur enn að vera veikur.
þarf svo líka að fara að huga að jólagjöfunum...tíminn líður svo hratt!!!