velmegunarsjúkdómar??
12. nóvember 2010 klukkan 12:53
Sá auglýsingu áðan þar sem var verið að auglýsa "hvíttun tanna" en það er að mér skilst mjög vinsælt hér í Noregi, ásamt ljósabekkjanotkun N.B. hjá ákveðnum hóp sem á margan hátt er erfitt að skilgreina
Þeir eru þó ekki eins ljósabekkjasjúkir og danir sem skora mjög hátt í því, allavega ef marka má fjölda ljósabekkjastofa þar í landi.
Útlitsdýrkun virðist hafa fylgt manninum í gegn um aldir og árþúsund og því verður seint breytt. Hins vegar breytist það á milli ára, áratuga, kynslóða, alda, árþúsunda hvað það er sem telst fallegt.
Það þótti til dæmis ekki fallegt á árunum í kring um sautjánhundruð og súrkál að vera útitekinn, brúnn, grannur og "fitt" - ekki aldeilis! Það gaf vísbendingu um það að maður hefði það ekki gott og þyrfti að vera úti að vinna, léttklæddur í sólinni og fengi eitthvað lítið að borða. Það þótti nefnilega ekki fínt að láta sólargeislana komast í snertingu við bera húð, það að gera lítið og borða var merki um velmegun. Já svona gengur þetta.
Annars finnst mér agalegt hvað fólk er oft fast inní einhverju boxi, ætlar að vera svona og svona og svo finnur það ekki grensuna - heldur alltaf áfram í brjálæðinu og eiginlega er það oft sjúklegt. Agalegustu "velferðarsjúkdómarnir" í mínum huga eru átröskunarsjúkdómar já ég held það séu velmegunarsjúkdómar kannski er ég að segja hér eitthvað af algjörri vanþekkingu og kannski er þetta algjört bull í mér en jú ég er farin að halda það velmegunarsjúkdómar. Átröskun er nefnilega ekki bara anorexía, það er líka búlemía og ætli offita flokkist ekki þarna með? Ég særi/móðga kannski einhverja en þetta er alls ekki illa meint. Ég fitna vegna þess að ég borða of mikið og hreyfi mig lítið en ég er líka alltaf að reyna að breyta hlutföllunum þar á milli. Kannski er þetta sjúklegt ástand sem ég er í, finnst ég verða að hreyfa mig 3-5 sinnum í viku en HALLÓ ég er í kyrrstöðuvinnu, sit við tölvu eða skólaborð allan daginn!!!!!
ÉG HEF ÞAÐ OF GOTT = Velmegun.
Annarð velmegunarsjúkdómur sem fer ekkert framhjá manni þegar maður mætir manneskju með þann sjúkdóm er svokölluð tanorexia eða það að vera tanisti. Fólk haldið þeim velmegunarsjúkdómi er sjúkt í að verða brúnt, ég kalla það velmegunarsjúkdóm því mest er þessi brúnka tilkomin út frá ljósabekkjanotkun - allavega virðist það vera raunin í Danmörku, maður sér það líka hér í Noregi og ÉG VEIT að þetta er til á Íslandi.
En jæja best að halda áfram að sitja við og læra í kyrrstöðu
Þeir eru þó ekki eins ljósabekkjasjúkir og danir sem skora mjög hátt í því, allavega ef marka má fjölda ljósabekkjastofa þar í landi. Útlitsdýrkun virðist hafa fylgt manninum í gegn um aldir og árþúsund og því verður seint breytt. Hins vegar breytist það á milli ára, áratuga, kynslóða, alda, árþúsunda hvað það er sem telst fallegt.
Það þótti til dæmis ekki fallegt á árunum í kring um sautjánhundruð og súrkál að vera útitekinn, brúnn, grannur og "fitt" - ekki aldeilis! Það gaf vísbendingu um það að maður hefði það ekki gott og þyrfti að vera úti að vinna, léttklæddur í sólinni og fengi eitthvað lítið að borða. Það þótti nefnilega ekki fínt að láta sólargeislana komast í snertingu við bera húð, það að gera lítið og borða var merki um velmegun. Já svona gengur þetta.
Annars finnst mér agalegt hvað fólk er oft fast inní einhverju boxi, ætlar að vera svona og svona og svo finnur það ekki grensuna - heldur alltaf áfram í brjálæðinu og eiginlega er það oft sjúklegt. Agalegustu "velferðarsjúkdómarnir" í mínum huga eru átröskunarsjúkdómar já ég held það séu velmegunarsjúkdómar kannski er ég að segja hér eitthvað af algjörri vanþekkingu og kannski er þetta algjört bull í mér en jú ég er farin að halda það velmegunarsjúkdómar. Átröskun er nefnilega ekki bara anorexía, það er líka búlemía og ætli offita flokkist ekki þarna með? Ég særi/móðga kannski einhverja en þetta er alls ekki illa meint. Ég fitna vegna þess að ég borða of mikið og hreyfi mig lítið en ég er líka alltaf að reyna að breyta hlutföllunum þar á milli. Kannski er þetta sjúklegt ástand sem ég er í, finnst ég verða að hreyfa mig 3-5 sinnum í viku en HALLÓ ég er í kyrrstöðuvinnu, sit við tölvu eða skólaborð allan daginn!!!!!
ÉG HEF ÞAÐ OF GOTT = Velmegun.
Annarð velmegunarsjúkdómur sem fer ekkert framhjá manni þegar maður mætir manneskju með þann sjúkdóm er svokölluð tanorexia eða það að vera tanisti. Fólk haldið þeim velmegunarsjúkdómi er sjúkt í að verða brúnt, ég kalla það velmegunarsjúkdóm því mest er þessi brúnka tilkomin út frá ljósabekkjanotkun - allavega virðist það vera raunin í Danmörku, maður sér það líka hér í Noregi og ÉG VEIT að þetta er til á Íslandi.
En jæja best að halda áfram að sitja við og læra í kyrrstöðu
Sverrir
Ekki gleyma grænmetisáti. Það er bæði átröskun og velmegunarsjúkdómur :)
#1
12. nóvember 2010 klukkan 13:35
Sigga Júlla
Fyrir utan hundasúruát að sjálfsögðu :D
#2
12. nóvember 2010 klukkan 13:38
það var verið að tala um sykursýski í útvarpinu í morgun, þar erum við með velmegunarsjúkdóm, þ.e. sykursýki 2
þessir sjúkdómar geta verið grafalvarlegt mál og geta leitt til dauða, offita er lífshættuleg, anorexía líka og ljósabekkirnir.
Ég ætla ekkert að gera upp á milli, ég myndi t.d aldrei fara í ljós því ég veit hvað það er hættulegt og fer illa með húðina, en ég er offeit og ég veit líka hvað það er hættulegt svo ég get í raun ekkert sagt og alls ekki hneikslast á velmegunarsjúkdómum annarra, því ég er eina þessum öðrum.
Þú hinsvegar hefur tekið meðvitaða ákvörðun um að lifa heilsusamlega og mér finnst það lofsvert og við sem sitjum föst í velmegunarsjúkdómum ættum að taka þig til fyrirmyndar. Ekki lifa í sjálfsblekkingu heldur líta í eigin barm og auðvitað væri þá eðlilegast að við myndum gera það sem við gætum til þess að bæta líf okkar og lífslíkur, annað væri kannski áframhaldandi sjálfsblekking!
úff ég ætla að láta þetta duga, aðeins of langt komment kannski

#3
12. nóvember 2010 klukkan 15:21