Hreyfingarskýrsla októbermánaðar
Hreyfingarskýrsla fyrir októbermánuð.
Mánuðurinn fór rólega af stað hjá mér hreyfingarlega séð. Ég hljóp 1/2 maraþon í lok sept og fór svo í vinnuferð til Íslands, ég tók einn skokktúr þar en var annars í fríi til 11. október.
Þá setti ég upp áætlun sem ég ætla að fylgja fram til áramóta. Þetta hefur gengið ágætlega og ég er komin í alveg ágætis rútínu með þetta.
Hér eru nokkrar tölulegar staðreyndir varðandi októberhreyfinguna mína:
Hlaup: 38 km Heildartími: 4:35 6 skipti
Hjól: 75 km Heildartími: 3:45 6 skipti
Ganga: 4 km Heildartími: 0:40 1 skipti
Annað: Heildartími: 6:00 8 skipti
"Annað" eru Zumbatímar og bodypump hlutinn í "SpinPumpinu". Ég set ekki inn í þetta svona snatt hér og þar, hjól í búð eða ganga í skóla eða búð. Það eru eingöngu markvissar æfingar skráðar.
Markmið fyrir nóvember er að halda þessu áfram og ná allavega að skokka 8 sinnum, taka 8 hjólaæfingar og 8 í annað. Að hafa gaman að þessu og njóta er einnig mikilvægur partur af þessu og muna að hvíla inn á milli.