Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fjölbreytileiki

30. október 2010 klukkan 11:05
Skondið.
Ég sá "status" hjá Pálínu Ósk á Fésbókinni þar sem hún spyr eftirfarandi:
"Er ég búin að vera of lengi í Noregi þegar mér finnst eðlilegt að kennarinn taki upp gítar og syngi glærurnar ofaní okkur, þegar mér finnst eðlilegt að kennarar kenni í gönguskíðaskóm á veturnar og noti stundum krít og töflu í stað tölvu og power point.
Norðmenn rokka !! Það er eðlilegt :O)"

Það er nefnilega svolítið skemmtilegt að spá í þessu, í okkar skóla eða allavega í okkar Institjúti ganga flestir kennarar um í frekar hversdagslegum fötum, gönguskór eru algeng sjón já og útivistarfatnaður almennt. Sama má segja með nemendurna þó þeir séu sumir hverjir oft ansi "náttúrulegir" í sínu "útliti". Flestir eru þó að því er virðist í afar þægilegum fötum + þægilegum skóm = friluftslivsfólkið og skogfagfólkið. Það er ekkert verið að fara offörum í meiköppinu heldur.
Stundum gengur þetta kannski of langt í hina áttina þ.e. sumir skipta varla um föt, eru grænir frá toppi til táar í hermannaklossum með grúví klippingu og göt í eyrum, nösum, vörum, tungum og sennilega fleiri stöðum líka.....það eru svokallaðir naturforvaltarar.
Þegar vetrar og snjórinn kemur eru gönguskíði í lange baner fyrir utan Institjútið, margir á gönguskíðaskóm og með skíðagleraugu á hausnum.
Kennararnir eru frekar venjulegir (eða hvað er venjulegt????)  en kennslutækni hefur verið okkur hugleikin síðustu vikur. Einn kennarinn mætti til dæmis með gítar skellti glæru á myndvarpann en á glærunni var mynd af norskum hippa frá 1972 sem gerði einhverja voða fræga vísu, því næst skellti kennarinn næstu glæru á og þar var texti og þegar nánar var að gáð mátti sjá þessa vísu. Síðan byrjaði kennarinn að spila og söng þessa hippa vísu og nota bene, hvatti okkur til að syngja með. Þetta var í kúrs sem heitir Flerburk av skog, fjölnytjaskógrækt og umfjöllunarefnið var mismunandi upplifanir í skóg. Annar kennari í sama fagi er að komast á ellilífeyri, hann heitir Lars Helge Frivold, fínasti karl en svolítð fyndið að hann er hvað mest nýmóðins gallabuxurnar og girðir sig illa!!!..... beltið hangir um miðjan rass þannig að það skín í Björn Borg nærbuxurnar hans (mest móðins nærbuxurnar í Norge). Þessi kennari notar power point og krítatöflu. Hér eru sko ekki tússtöflur, þó var húsið sem hýsir Institjútið tekið í gegn fyrir ca þremur árum og settar upp fullt af stórum góðum krítartöflum I LIKE því tússtöflur eru hallærislegar!!!
Alltaf þegar nemendur eiga að halda fyrirlestra þá nota þeir power point, ég og hópfélagi minn gerðum undantekningu í vikunni, við dreyfðum bara einni mynd á pappír, héldum fyrirlestur á töflu.....kennararnir vissu ekki hvernig þeir ættu að bregðast við því þetta var ekki vanalegt að nemendur gerðu svona. Það er nefnilega allt í lagi að benda fólki á það að það að nýta hin ýmsu tól til kennslu skilar bestum árangri - það hef ég lesið í vísindalegri grein, þó ég geti nú ekki linkað hana hér inn akkúrat núna en svona er þetta.
Fjölbreytileikinn er bestur, hvort sem um er að ræða klæðnað fólks eða kennslutækni Cool
Það þarf ekki allt að vera eins.
Það þurfa ekki allir að vera eins.
Það þurfa ekki allar skoðanir að vera eins.
Maður á að standa við sitt, vera maður sjálfur.
....og muna að virða náungann, hvort sem hann er í skrítnum fötum, gerir eitthvað örðuvísi, eða hefur aðrar skoðanir.


Laugardagsmorgun, ég er að fara í SpinPump, Haukur er búinn að fara út að skokka. Eftir hádegið þurfum við að versla inn og klára að græja Halloween búninga!!! Klukkan 18:00 munum við svo öll fjölskyldan leggja af stað uppáklædd í okkar búningum á Ekornveien í Halloween partý jeijjjjj Tongue out

 
Hrefna
Lars Helge er besti kall. En virkaði oft nervös í tímum, t.d. gerðist það iðullega að hann hneppti skyrtunni alveg frá sér á meðan hann talaði og var svo búinn að hneppa upp aftur eftir tímann. Það var frekar distraherandi að fylgjast með því...
#1
30. október 2010 klukkan 12:37
 
Silla systir
hehehe... alltaf jafn gaman að lesa bloggfærslurnar þínar Sigga mín :)
#2
30. október 2010 klukkan 13:38
 
Ţórunn H.
Hahahaha..... dásamlegt Sigga mín - vissirðu ekki að þú ert í mesta "lúðafaginu" í skólanum ;-) Ef þú ætlar að slá um þig í tískubransanum þá er landsapsarkitektur málið ( sko minn maður var nebblega þar....) Hann var nú að hlæja að því einhverju sinni að þeir Valdimar væru að slá um sig með nýju trendsetti á þessari línu þegar þeir mættu galvaskir í flíspeysum og gönguskóm í tímana - bara gamli góði bændadeildarfílingurinn! Já málið er einmitt að vera maður sjálfur - klikkar aldrei :-)
#3
31. október 2010 klukkan 01:57

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.