Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

maraþon-paraþon

28. október 2010 klukkan 08:57
Eins og þið kannski hafið tekið eftir þá er ég búin að setja upp teljara hér á síðuna sem telur niður að næsta hálf maraþoni sem ég er ákveðin í að taka þátt í þ.e. í Reykjavík í ágúst á næsta ári. Mér finnst reyndar fulllangt í það, langar til að setja mér annað markmið í millitíðinni og því erum við Bríet að leita að hlaupi í vor. Á vafri mínu um Fésbókina sá ég þessa síðu sem mér þótti forvitnileg og hef ég verið að nota hana til að skoða hvar í heiminum eru hlaup, maður getur sett inn skilyrði um vegalengd, heimsálfu, lönd, mánuð, ár og svo framvegis. Ég var nú hógvær og leitaði að hálfu maraþoni í maí 2011 í Evrópu - það komu 46 hlaup upp við þá leit....svo nú er bara að spá og spegúlera, vega og meta, láta sig dreyma.... Hér er þessi síða. Held það geti verið gaman að skella sér með fjölskylduna í smá helgarferð til einhverrar borgar í Evrópu eftir ritgerðarskil, og skoða þá borg á hlaupum.....Cool Var að vonast til að ég fyndi eitt slíkt í Svíþjóð, nálægt Uppsala en þar eigum við heimboð....

Haukur farin að æfa hlaup, ég er alsæl með það, gott að hafa kallinn með sér í þessu - næ honum kannski með í hálft maraþon 2011 tja hver veit Laughing Hann ætlar að taka þátt í Birkebeiner í mars EF hann nær að skrá sig en það opnar fyrir skráningu í byrjun nóv en í fyrra var orðið fullt á 46 sek!!!! Birkebeiner er gönguskíðakeppni 52 eða 54 km (man ekki alveg) þar sem gengið er frá Lillehammer yfir til Rena í Austurdal. Ég ætla bara að taka því rólega á skíðunum í vetur, ætla frekar að einbeita mér að því að ná upp tækni - veitir ekki af því!!!! Hlakka til.

Fer í klippingu á morgun, ágætt til að minnka loftmótstöðuna hahahhahha!!! ....og hvað á ég að elda í kvöld....????
Góðar stundir.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.