Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

jólablogg (fullsnemmt) en ég er ekki í jólaskapi!!

27. október 2010 klukkan 09:57
Á næsta ári ætla ég ekki að lenda í tímaþröng með jólagjafir og jólakort - hugsaði ég í desember í fyrra. Ég eyddi góðum tíma í að búa til jólakort í tölvunni, raða myndum upp, vesenast með liti, kaupa pappír og blek í prentarann og svo framvegis. Þegar jólakortin voru tilbúin gerðist ekki meir!!!! Við sendum örfá kort. Við vorum frekar seint í að kaupa jólagjafirnar, vorum alveg lost í hvað við gætum gefið fólki og sendum þær svo heim, þær komust alveg til skila. Það var bara einhvernveginn þannig að eftir prófin í fyrra var ég á "felgunni" gat ekki meir - jólakortaskrif, innpökkun og þess háttar var ekki inní myndinni. Með þessa reynslu var tekin ákvörðun um að byrja tímanlega í ár, við erum búin að kaupa flestar jólagjafir, núna er ég farin að hugleiða það að kaupa jólakort og gera þau klár til sendingar þannig að þegar formleg prófatíð hefst verða pakkar og kort farin til Íslands Cool Þá er bara að standa við stóru orðin......

Annars erum við orðin mjög spennt aðeins átta dagar í að Steinunn og Dóri komi í heimsókn til okkar, jibbbbííí!!! Þá verður farið í skoðunarferðir, búðir, borðaður góður matur og haft gaman, vá hvað ég hlakka til!!!
En þangað til verður fókusinn á náminu Laughing
 
Magga
Hehe...ég hugsa þetta á hverju ári, að minnsta kosti með kortin :) Svo einhverra hluta vegna er kominn 21. eða 22. des og ég ekki enn búin að senda þau! Telst góð ef ég er búin að búa þau til! ;) Þannig að mér fannst rosalega gott að lesa þetta ójólaskapslega jólablogg og vita að það eru fleiri svipaðir mér í þessu!
Spurning hins vegar, hvort maður verði úber skipulagður þetta árið og verði búin með jólakortin snemma...maður hefur eitthvað svo mikið að gera :)
#1
27. október 2010 klukkan 10:12
Gott plan, sniðugt að vera búin fyrir próf. Það var alltaf mitt mottó þegar ég var í skólanum. Þá gerði ég jólakortin einmitt í okt og jólagjafirnar voru að týnast inn í okt og nóv.
En núna þegar maður er ekki í skóla þá fer þetta bara í fokk, ég gerði jólakortin á seinustu stundu í fyrra of föndraði þau ekki einu sinni!
En einmitt um daginn var ég að hugsa um að fara að hugsa um jólakortin.... ég held ég ætti bara að hella mér í þau núna, nota þennann góða innblástur frá Siggu skipulögðu og drífa mig af stað í jólastússi það gerir þennann tíma líka svo miklu skemmtilegri.
hafðu það annars bara gott mín kæra
#2
27. október 2010 klukkan 12:32

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.