Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

kaffispjall

26. október 2010 klukkan 07:40
Einn af kostum þess að vera í námi er hversu "flexible" maður getur verið með vinnutímann. Núna er Þórður Logi til dæmis veikur og þá get ég alveg breytt mínum námsplönum yfir daginn. Í dag er Haukur reyndar heima hálfslappur og því ekki í vinnu í dag..... og ég ekki enn farin en það er líklega vegna þess að mér þykir ósköp gott að taka einn og einn morgun í rólegheitum. Sitja með kaffibollann, skoða vefmiðlana, ræða við Þórð Loga sem er með Kardimommubæinn á heilanum og er að læra stafi og ekki má gleyma því að hann sér fyrir sér að það verði alveg upplagt fyrir mömmu sína að fá vinnu á Íslandi sem kokkur. Veit ekki hvort hann er að sjá fyrir sér að ég verði eins flink og Hellstøm sem er frægasti sjónvarpskokkurinn hér í Noregi eða Gro kokkur á leikskólanum á Hvanneyri. Ég veit ekki en það er gaman að spjalla við unga manninn um lífsins gagn og nauðsynjar og skyggnast inn í hans veröld. Fyrir honum eru ræningjarnir þrír algjörir skúrkar sem hann vorkennir samt pínu en það allra versta sem hann veit sér hann á myndum frá Afríku þar sem börn gleðjast yfir því sem börnum hér þykir sjálfsagður hlutur og óþarfi að gleðjast yfir. Ég er mjög ánægð með að eitt af haustverkefnunum á leikskólanum hans skuli vera að kynna sér eitt ákveðið land, ákveðinn skóla þar og þau "kynnast" einum einstaklingi þar (þó það sé ekki þannig, það er bara auðveldara fyrir börnin að finnast þau "tengjast" þessum skóla ef þau hafa eitthvað andlit og nafn). Krakkarnir leggja sitt af mörkum til að hjálpa viðkomandi, safna peningum fyrir skóladóti, mat og öðrum nauðsynjum.

Við erum á fullu að skipuleggja fríhelgar vetrarins, nú er Haukur kominn með plan yfir hvenær hann á pottþétt helgarfrí og er okkur að takast að gera fríhelgarnar að skemmtilegum viðburðum. Við ætlum t.d. í eina hyttuferð með vinum frá Íslandi, ætlum að taka eina lúxushelgi í Hafjell, fáum vinkonu og dóttur hennar í helgarheimsókn í lok janúar, síðan stendur til að fara til Budor sem er þægilegt skíðasvæði í ca 2 tíma fjarlægð og skíðaferð til Trysil er einnig í kortunum.
Jólafríið verður alveg þokkalegt hjá mér og strákunum. Stefán Snær ætlar til Danmerkur til pabba síns þannig að við hin verðum bara þrjú í kotinu, ætla bara rétt að vona að það verði ekki eins og í fyrra snjór, snjór, snjór en Haukur þarf að vera á vakt yfir öll jólin og áramót UndecidedEn hins vegar en þarna fullt sem hægt er að láta sér hlakka til. Ég geri svo ráð fyrir að þegar byrjar að vora verði ég í mínum heimi á endasprettinum í náminu.
Ég er farin að tala um vorið!!!! En það er nú málið að október er að verða búinn bara mánuður eftir af fyrirlestrum þessa árs - tíminn er svo fljótur að líða........

Jæja best að skunda út í skóla og taka stöðuna, eigið góðan dag Laughing 
 
Hildur Dagbjřrt
Alltaf kósý að taka einn og einn morgun rólega :) Hlakka til þegar bumbulínan mín verður nógu stór til að velta fyrir sér öllu mögulegu og spjalla um furðulegustu hluti sem bara börn sjá. Við sjáumst kannski einhvað um jólin fyrst þið verðið hérna líka.

Kær kveðja
Hildur Dagbjört
#1
26. október 2010 klukkan 08:14
 
Ţórhildur
Það er svo gaman að spjalla við börnin um þeirra sýn á lífið. Arnar þór var mikið að spá í því um daginn eftir að frændur hans 2 höfðu verið í helgparpössun hjá okkur hvort það væri ekki erfitt að eiga svona mörg börn og hvort við værum ekki þreytt. !!!! Hann þurfti að velta þessu mikið fyrir sér. En jí hvað mig er farið að hlakka til í febrúar.
Kveðja í kotið
Þórhildur
#2
26. október 2010 klukkan 09:12
 
Hrefna Jóhannesdóttir
við höfum bæði verið í Budor og Trysil (reyndar ekki á svigskíðasvæðinu í Trysil heldur uppí skógi í kofa með fínustu gönguskíðabrautir allt um kring). Mér finnst alltaf eins og himnarnir opnist og englakór birtist í guðdómlegri birtu í hvert skipti sem ég hugsa um norska hyttetúra :)
#3
26. október 2010 klukkan 10:14
 
Jóna Lind
spennandi túrar framundan...við erum ekki komin svo langt að skipuleggja, en það verður pottþétt farið til Lillehammer að skíða í vetur
#4
26. október 2010 klukkan 18:19

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.