Veikindi
Fyrir hádegi í gær lagðist Þórður Logi upp í rúm, sagðist vera kalt og þreyttur. Hann svaf meira og minna í allan gærdag, borðaði sama og ekki neitt (ca eina brauðsneið og eina pönnuköku) og bara svaf . Í nótt kastaði hann upp tvisvar og var mjög slappur. Í morgun borðaði hann eina jógúrt, hálfa brauðsneið og fékk smá kók að drekka, hann horfði á barnaefni í sjónvarpinu en er núna lagstur uppí rúm, eftir að hafa verið hér frammi í stofusófanum í ca tvo tíma. Mikið svekkelsi í gangi þar sem í dag ætlaði Þórður að taka þátt í haustsúpudag á leikskólanum en þá selja börnin foreldrunum haustsúpu frá kl 15-16:30 og bjóða einnig til sölu listaverk en allt þetta er liður í safna pening til að styrkja skóla á Indlandi. Í fyrra styrktu þau skóla í Nepal og lærðu heilmikið um menninguna þar, mat og annað en núna í ár er það Indland. Síðasta vika fó að miklu leyti í undirbúning fyrir þennan viðburð, grænmetið sem átti að fara í súpuna var brytjað og fryst, það var tekið til og þrifið og gengið frá listaverkum. Agalegt að missa af þessum degi.
Það verða svo vaktaskipti hér um hádegi þegar Haukur kemur heim og ég þarf að fara í skólann.
Allir aðrir á heimilinu eru hressir.