útieldun - myndir
24. október 2010 klukkan 12:52
Eftir að hafa skellt mér í alveg ágætis spinningtíma í gærmorgun, fórum við að undirbúa útieldun. Pálína, Ísak og Íris komu eftir hádegi og við Pálína skelltum okkur í smá skógargöngu á svæði þar sem við erum að fara að vinna verkefni í "Flerbruk av skog". Eftir að hafa tekið slatta af myndum drifum við okkur upp á Frydenhaug að eldstæðinu góða þar sem Haukur, Ísak og krakkarnir voru að starta eldun. Við gerðum ommilettu á pönnu, grilluðum pylsur, fyltum appelsínur með súkkulaði, fylltum epli með kanil og rúsínum, pökkuðum inn og grilluðum og fengum okkur kakó. Þetta var alveg ljómandi gott svo sátum við fram eftir kvöldi og spjölluðum, krakkarnir hafa svo gaman að þessu og eiginlega er þetta eitthvað sem maður þyrfti að vera duglegri við að gera og prófa sig áfram við ýmiskonar eldun á báli. Hér eru myndir frá gönguferðinni og útielduninni.
Jóna Lind
vá þetta hefur verið æði...ég er á leið í tur upp að Sognsvann með fjölskyldu og vinafólki...og að sjálfsögðu verður nesti með í för
#1
24. október 2010 klukkan 13:06