útsvar
Ég er eitthvað svo fókuseruð á hreyfinguna að það er ekkert venjulegt, held að hlaupaáráttan sé orðin að vana þó ég sé reyndar ekkert að hlaupa neitt agalega oft í viku, eða bara tvisvar sinnum. Það vildi hins vegar til í dag að ég var í skólanum mjög lengi og það var orðið myrkur þegar heim kom. Eiginlega er það léleg afsökun því það er alveg hægt að hlaupa í myrkri, maður notar bara höfuðljós! Það er nefnilega þannig að þó ég búi í 16 þúsund manna sveitarfélagi og þéttbýlið sjálft hér að Åsi losi 8 þúsund manns þá er mjög langt á milli ljósastaura og birtan frá þeim fáu sem eru er ekki upp á marga fiska. Af hverju er ég að flétta inn íbúatölum, jú af þeirri ástæðu að fjöldin í sveitarfélaginu öllu samsvarar einni Akureyri og fólksfjöldin í þéttbýlinu Ås er eins og hva ca 3 sinnum Borgarnes..... Ef ég væri íbúi í þessum sveitarfélögum myndi ég frekar vilja draga úr lúxusnum sem öll lýsingin gerir og eyða peningunum mínum/sveitarfélagsins s.s. útsvarinu í að standa vörð um störf. Eða borga sveitarfélögin kannski ekki þann pakka? AHHH þarna tala ég kannski í hring, því þegar við kaupum rafmagn þá erum við að búa til störf......
En þessi bloggfærsla átti ekki að fjalla um þetta. Hún átti að fjalla um hreyfingu. Ég fór semsagt ekki út að skokka í dag eins og segir í æfingaplaninu. Hins vegar veit ég að ég verð búin snemma í skólanum á morgun og því ætla ég mér í skokktúr á "hvíldardegi"
í björtu!!