Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ég er ekki komin í jólaskap.....

19. október 2010 klukkan 22:06
......bara alls ekki, enda fátt sem minnir á jólin þessa dagana NEMA það að bekkurinn hans Stefáns er að selja smákökur. Ein gerðin sem þau eru með til sölu heitir "Sjokoladeflarn" og þær eru guðdómlega góðar - við keyptum svoleiðis kökur fyrir síðustu jól og jeminneini - ég hefði aldrei trúað að ég ætti eftir að segja það sem ég ætla að segja núna......þær eru betri en "Sörur"!! Við opnuðum semsagt einn bauk af þessum kökum núna í kvöld og mmmmmm!!! Ef ég kaupi ekki upp lagerinn mun ég láta verða af því að baka þessar kökur fyrir jólin.
Hér er uppskriftin:

Sjokoladeflarn
2 matskeiðar sykur
3 egg
250 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
3 dl mjólk
300 gr haframjöl
150 gr smjör (brætt)

Blandið öllu saman í skál og hrærið, setjið bráðið smjör í síðast og hrærið vel.
Setjið með matskeið á bökunarplötu og bakið í 5 mín við 200°C

200 gr dökkt súkkulaði er brætt og því smurt á kökurnar og þær lagðar saman (tvær og tvær) eins og samlokur. Kökurnar eru síðan kældar í ísskáp í klukkutíma.

 
 
Heiđa mákona
Ummmm hljómar mjög vel!!! kannski maður baki svona um helgina ;)
#1
20. október 2010 klukkan 00:01
 
Magga
Namm namm :) Alveg spurning um að prófa þessar...maður verður nú að kanna þessa fullyrðingu þína fyrst þú tekur svona sterkt til orða...að þær séu betri en Sörur :D
#2
20. október 2010 klukkan 12:04
 
Jóna Lind
hljómar vel...misstu þig samt ekki í kökudunkinn heheh
#3
22. október 2010 klukkan 23:51
 
Hanna Adda
Sæl Sigríður! Var að leita að uppkrift af þessum norsku kökum og kom þá inn á þig SNILD. Var í Norge og keypti eina öskju af skólakrökkum. Fer nú að baka þökk sé þér jólakveðja Hanna
#4
30. nóvember 2010 klukkan 12:17

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.