Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

smá raus í mér....

13. október 2010 klukkan 09:07

Ég sá það á fésbókinni í gær að fólk var í umvörpum að setja statusa um að það hlustaði ekki á fréttir og setti bara tónlist á "fóninn" í stað þess að hlusta á neikvætt raus. Þá fór ég að hugsa um hvað það er hálf ömurlegt að upplifa alla þessa neikvæðu umræðu sem er í þjóðfélginu þarna heima og hvað það er nú niðurdrepandi. Það er svosem ekkert skrýtið að umræðan sé neikvæð - við erum jú í djúpum skít en ég hef trú á að það lagist en það tekur tíma, allt tekur tíma. Hins vegar þótti mér frábært að þrátt fyrir allar neikvæðar fréttir, þá sá ég breytingu á fólki þegar ég var heima um daginn. Ótrúlegasta fólk er hætt að reykja, ótrúlegasta fólk er farið að stunda hreyfingu, hugsa um mataræðið og fyrir vikið sér maður hamingjuna geisla af fólki. Ætli "kreppan" hafi ekki hreyft við fólki og fengið það til að hugsa hvað það er sem virkilega skiptir máli?

Vinkona mín spurði mig hvort við værum enn ákveðin í að koma heim næsta sumar, hvort við hefðum það ekki mikið betra í Noregi. Ég sagði henni að við hefðum það svo sem ágætt í Noregi en það eru önnur lífsgæði sem ég sækist eftir en "böns of monní". Lífsgæðin eru fólgin í fjölskyldunni, vinunum, fallega landinu okkar, heita vatninu og og og....já þar sem ræturnar eru, það er allavega mín skoðun. Ég er íslendingur og verð aldrei neitt annað.
 

p.s. annað sem mér þótti gaman að uppgötva þegar ég var heima, það var hversu fólk í verslunum og þjónustustörfum er kurteist og hjálpsamt - mikill munur á því á milli Noregs og Íslands, Íslandi í hag. 

 
Magga
Gott að heyra að þið stefnið aftur heim :) Mér finnst samt vera mun fleiri lífsgæði en launin í Noregi. Þjóðfélagið er allt miklu rólegra að mínu mati, ekki eins ofboðsleg vinna myrkranna á milli, og bara allt einhvern veginn rólegra.
Ég væri nefnilega alveg til í að flytja aftur út og búa þar í einhver ár...tek kannski ekki svo djúpt í árinni að segja að ég muni búa þarna það sem eftir er, en að minnsta kosti í 5-10 ár. Í mínum huga er nefnilega Noregur alveg jafn mikið "heima" eins og Ísland :)

Svona er þetta misjafnt á milli manneskja :)

Knús í kotið!
#1
14. október 2010 klukkan 17:07
 
ég sjálf
Já það er satt, mismundandi sýn og skoðanir. En veistu að Noregur hefur breyst mjög mikið síðustu fimm ár, hér ríkir svokallað "2007 ástand" fólk kaupir og kaupir, vinnur svart, hefur lítinn tíma fyrir börnin sem þýðir aukin fíkniefnavandamál, svo og minni íþróttaiðkun barna og unglinga, offituvandamálið fer stigvaxandi og heilbrigðisgeirinn stendur ráðþrota frammi fyrir þessum lífsstýlsvandamálum - það er m.a. þetta sem ég byggi mitt mat á.
#2
14. október 2010 klukkan 18:10
 
Magga
Já, ok...það getur margt gerst á 5 árum...fúlt samt að staðan sé svona. Skil þig vel að þessu leyti, við nýbúin að ganga í gegnum "2007" og svo kemur það bara aftur þremur árum seinna í öðru landi ;)

Burtséð frá öllu þessu þá verður nú gott að fá ykkur heim :D

Knús í kotið!
#3
15. október 2010 klukkan 01:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.