Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

af Íslandsferð....

11. október 2010 klukkan 06:11
Það var mikið að ég komist í að henda inn smá bloggi.
Ferðin til Íslands gekk vel, við Þórður Logi tókum flugrútuna héðan frá Åsi á mánudeginum fyrir hálfum mánuði og brunuðum upp á Gardermoen, þaðan flugum við heim með Icelandair. Það var mjög notalegt, Þórður talaði mikið um það á leiðinni að það töluðu bara allar flugfreyjurnar íslensku og barnaefnið í flugvélinni var meira að segja á Íslensku!!!! Flugið og lendingin gekk vel, við fórum með flugrútunni til Reykjavíkur og á BSÍ tóku Þórhildur, Björk og Hekla á móti okkur. Okkar fyrsta verk var að fá okkur pylsu og svo var keyrt upp í Borgarnes í kaffi til Ingu Dóru en hún hafði fyrr um daginn nálgast tölvu fyrir mig sem ég var að fá mér. Þaðan var brunað til Sollu og fjölskyldu en ég gaf mér engan tíma til að stoppa en gat þó allavega séð framan í alla fjölskyldumeðlimi. Þaðan var svo keyrt til Þórunnar og Sigurjóns sem buðu upp á lambahrygg og tilbehör, við gistum þar fyrstu nóttina. Daginn eftir fór Þórður með Þórunni á leikskólann en ég skutlaðist suður á fund, þegar ég kom til baka að sunnan var klukkan um hálf sex, við fórum í sund í Borgarnesi, Þórunn kom með okkur og svo hittum við Sirrý og dætur þar og fullt af öðru fólki. Keyrðum svo á Hvanneyri í mat til Eddu og Gulla en við gistum þar næstu þrjár nætur og sáu þau góðu hjón um drenginn á meðan ég var fyrir sunnan, myrkrana á milli að vinna. Það má segja að ég hafi þessa daga aðeins hitt Þórð á morgnana og átti með honum stund milli hálf sjö og korter í átta. Eitt kvöldið var mér boðið í kjötsúpu hjá Ingu og Kela en ég var ekki komin til þeirra fyrr en um kl tíu um kvöldið en það var samt alveg frábært.
Föstudagskvöldið 1. okt kom svo mamma suður á Hvanneyri og sótti okkur. Við fórum í sund í Hofsós, heimsóttum tengdó og borðuðum veislumat hjá mömmu og pabba á laugardeginum, á sunnudeginum kíktum við í morgunkaffi til Steinunnar, kíktum á Sillu og Gumma og fórum svo norður á Akureyri og hittum ömmu gömlu. Ég sótti svo bíl á bílaleiguna og kvaddi mömmu og Þórð og brunaði austur á Egilsstaði. Þórður var alla vikuna hjá mömmu og pabba, fór á leikskólann og hafði það gott, fór í sund daglega og naut sín vel. Ég var fyrir austan að vinna og sofa, fór tvisvar í sund og hljóp einu sinni 5 km. Bjó hjá Ólöfu og Adda og hafði það gott hjá þeim. Ég tók svo flugið suður á föstudaginn, var komin í bæinn um hálf sex, brunaði á Mógilsá, skilaði öllu dótinu af mér og svo mætti Þórhildur og sótti mig og við keyrðum upp á Hvanneyri í "molasopa" til Bjarkar sem var víst eitthvað aðeins meira en molasopi, brauð, ostar og ég veti ekki hvað og hvað. Fullt af kunningjum leit við og áttum við þarna skemmtilegt kvöld saman. Mamma og pabbi komu keyrandi á Hvanneyri með Þórð þetta kvöld. Um nóttina lögðum svið svo af stað til Keflavíkur, Þórhildur skutlaði okkur. Við tékkuðum okkur inn, versluðum eitthvað í fríhöfninni, og flugum svo til Norge. Ég var eins og sprungin blaðra eftir að ég kom heim, svaf meira og minna seinnipartinn á laugardaginn og fór snemma í háttinnn um kvöldið og dormaði fram undir hádegi í gær!!!
Þetta var fín ferð, einkenndist af miklum hraða, mikilli keyrslu og gleði.
Ég þakka öllum kærlega fyrir alla hjálpina, mamma og pabbi, Edda og Gulli, Þórunn og Sigurjón - fyrir gistingu, fæði og pössun. Ólöf og Addi - fyrir gistingu og fæði.  Björk og Þórhildur fyrir skutl, lán á bíl, "molakaffið", gistingu og fyrir að vera alltaf til staðar.  OG auðvitað allir hinir fyrir allt!!
greinilega góð ferð, gaman að sjá þig samt pínu pons
#1
11. október 2010 klukkan 09:36
 
Anna Lóa
Sæl.... gott að allt gekk vel á Íslandi. Leitt að missa af þér hérna á Egilsstöðum en nóg að gera hjá okkur báðum... Sé þig síðar ;o) ... en velkomin heim aftur..hehehe...
#2
13. október 2010 klukkan 01:05

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.