Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Náði enn einu markmiði - hljóp 1/2 maraþon í dag.

26. september 2010 klukkan 19:25
Jæja, það tókst - ég komst í mark á undir þremur tímum en það var markmiðið. Ég hljóp fyrstu 10 km en tók því svo rólega eftir það, var ákveðin í að komast og ætlaði ekki að láta sjúkrabílinn pikka mig upp. Hér er smá tölfræði.

Punkt Totaltid min/km km/t Splittid min/km km/t
4,3 km 0:28:28 6:37 9,07 0:28:28 6:37 9,07
9,9 km 1:12:35 7:20 8,18 0:44:08 7:53 7,61
13,8 km 1:48:08 7:51 7,66 0:35:33 9:07 6,58
21,097 km 2:49:46 8:03 7,46 1:01:39 8:27 7,10
Þá er ekkert annað að gera en að halda áfram að æfa og stefna að því að bæta sig, taka hálft maraþon að ári Cool

EN ég hefði aldrei látið mér detta þetta í hug hvað þá að vera svona dugleg að æfa ef ég hefði ekki verið með frábæra manneskju mér við hlið síðasta árið en það er hún Bríet elsku vinkona mín - knús á þig Bríet og takk fyrir skemmtilega skokktúra síðasta árið, hvatningu og skemmtilegheit - við erum sko ekki hættar!!!! Takk Jóna Lind og Eva Margrét og Sigrún Þöll fyrir frábæran innblástur í gegn um blogg, tölvupósta og fésið!!!! OG auðvitað allir aðrir sem hafa haft trú á mér og komið mér eða hjálpað mér að fá trú á sjálfri mér Kiss



p.s. fór ekki að gráta þegar ég kom í mark....soldið svekkt yfir því......Embarassed
 
Jóna Lind
Frábært hjá þér vinkona, nú hefur þú líka markmið fyrir næsta maraþon...bæta tíma það er svo frábært. Til hamingju með árangurinn.
p.s ég var nú frekar svekt þegar ég sá hlauparana þegar ég var að ná í Heklu...vildi svo hafa verið með
#1
26. september 2010 klukkan 19:31
 
Sissa
Dugnaðarforkur frænka, mátt sko vera miklu meira en stollt af þér.
Ertu svo ekki komin á klakann í smá tíma og með aukafarþega, er orðin spennt að vita hver það er................eða fær maður kannski ekki að vita það???
Bið að heilsa í bæinn og gangi þér í vinnunni þinni hérna heima! :)
#2
26. september 2010 klukkan 19:54
 
Magga
Frábært hjá þér mín kæra! :D Það var náttúrulega ekki spurning að þér tækist þetta, þú átt eftir að brillera að ári :)

Vonandi næ ég að sjá þig/ykkur eitthvað í Íslandsförinni ykkar, saumónum sem átti að vera síðasta fimmtudag var frestað (held að ég hafi verið sú eina sem komst og ég hefði ekki komist fyrr en að verða hálf 11), þannig að ég held að hann verði núna á fimmtudaginn. Svo saumó hjá mér fimmtudaginn þar á eftir :)

Knús í kotið!
#3
26. september 2010 klukkan 20:40
 
Jóna Rún
Magnað! Hjartanlega til hamingju með þennan árangur!!!
#4
26. september 2010 klukkan 20:54
 
Eva
Hjartanlega til hamingju! Man mjög vel eftir mínu fyrsta hálf maraþoni, þvílíkur sigur :)
#5
27. september 2010 klukkan 09:24
 
Silla systir
Frábært hjá þér :) Ég er svo stolt af þér elsku systir ;)
#6
27. september 2010 klukkan 18:29
Innilega til hamingju með áfangann. Góða skemmtun á Íslandi :o)
#7
28. september 2010 klukkan 22:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.