af kjötætu sem kannski hefur látið sér til munns fórnarkjöt annarra trúarbragða
21. september 2010 klukkan 18:14
Á meðan "feisbúkkstatusar" einkennast af "Halal" og sólin kemur upp í austri og sest í vestri þá er ég búin að vera í nettu stresskasti. Það kemur reyndar því ekki við hvort ég borða fórnarkjöt annarra trúarbragða eða ekki en ég hef haft í nógu að snúast. Reyndar skil ég ekki hvað er í gangi með þetta Halal mál. Hvað er að því þó einhverjir ákveði að taka upp þá sláturaðferð sem kennd er við Halal, þó ég sé reyndar ekki viss um hvort aðferðin sjálf heiti Halal, kjötið er allavega kallað Halal kjöt. Múslimar borða þetta Halalkjöt og hvað ætli þeir séu margir í heiminum? Ég hef bara ekki hugmynd um það, velti þessu svona upp í gamni bara. Þyrfti að fá allar þessar staðreyndir á hreint hjá múslimskum Kenýskum kunningjum okkar sem eru nota bene besta fólk og virða það þó ég gangi um á hlýrabol með hárið flaksandi.
Berum virðingu fyrir trú, hver svo sem hún er.
Lifi byltingin!!!
Annars er ég bara á fullu í að undirbúa heimferð, vinna mér í haginn í skólanum og undirbúa mig fyrir hálfa maraþonið á sunnudaginn en jæja....
Ég er farin að læra
Góðar stundir.

Sigga Júlla
góður pistill eþ;)
#2
21. september 2010 klukkan 21:30
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
Ég held að þessir "rétttrúnaðarmenn" ættu frekar að hugsa um hvernig líftóran er murkuð úr fólki hér og þar í heiminum, frekar en að æsa sig yfir hvort einhver kyrjar bænir yfir fénu okkar þegar því er slátrað.
Mér er, eins og Eddu, nokk sama hvernig fénu er slátrað svo fremi sem það er gert á mannúðlegan hátt, sem mér sýnist nú vera raunin með Halal eins og fyrri aðferðir.
Mér er, eins og Eddu, nokk sama hvernig fénu er slátrað svo fremi sem það er gert á mannúðlegan hátt, sem mér sýnist nú vera raunin með Halal eins og fyrri aðferðir.
#3
22. september 2010 klukkan 11:33
Sú ráðagóða
Já, akkúrat trúin mín og trúin þín. Ég s.s. uppgötvaði í þessum umræðum af hverju ég borða ekki kjúlla. Ég s.s. veit ekki eftir hvað trú er slátrað þ.e. hálshöggnar (ramm íslenskur siður), drepnir með rafstraum eða hreinlega rotaðir með hamri.
Þvílík vitleysa. En pistlarnir há ykkur eru frábærir endilega birtið þetta því þetta hlýtur að vekja fólk til umhugsunar þ.e. hvernig hafa aðferðirnar verið í gegnum tíðina og svo þetta með slátrunina á mannfólkinu. PÚFF
Verða að hætta en gæti röflað áfram ég á s.s. að vera að vinna.
Kveðja til allra

#4
23. september 2010 klukkan 08:46
Það var svo sem auðvitað að þegar kæmu möguleikar á að flytja út ísl lambakjöt, kæmu einhverjir "rétttrúnaðarmenn" hérlendir og æptu upp yfir sig að þeir vilji ekki borða kjöt sem hafi verið slátrað að hætti múslima
Hvílíkt bull - hafa þessir sömu sérvitringar, hingað til haft minnstu hugmynd um hvernig skepnum er lógað - ég stórefa það
Svo er líklega Sveinbirni fyrir að þakka að nú veit öll þjóðin hvernig slátrun fer fram og hver er munur "hefðbundinnar" slátrunar og Halal eða hvað það nú kallast - hann flutti fjálglega lýsingu á hvoru tveggja sl föstudag í RUV
Hér áður fyrr voru skepnur skornar á háls - án rafdeifingar. Þar á eftir kom skot í heilann, aðferðin - nú er það rafdeifing og stunga í hjartað
Hverju skiptir þetta - eins og ég sagði bara að það sé á mannúðlegan hátt, mega einhverjir vúddúprestar kyrja að vild, ég held mig flökri ekki við matnum fyrir því
Svo væri alveg óhætt að fréttamiðlar kynnu að halda kjafti um ýmislegt svona sem skiptir engu máli - hægt var að segja frá því að halal-sinnar hefu samþykkt slátrun hérlends sláturhúss og þar með væri útflutningur þangað í fínu lagi
BAZTA