Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

change of plan

20. september 2010 klukkan 06:24
Þetta gengur ekki lengur! Er búin að láta líða sex daga á milli bloggfærsla þannig að fók hefur ekki hugmynd um hvað er í gangi á bænum!!!
Það er einfalt að segja frá svosem, það er búið að vera nóg að gera. Ég fékk þá hugmynd í svefnrofunum á fimmtudaginn að það væri kannski sniðugt að eyða smá pening í örlitla skemmtun og ánægju fyrir yngsta mann á heimilinu. Ég hringdi í Icelandair og tékkaði á hvað flugmiði fyrir hann myndi kosta ef hann kæmi með mér til Íslands. Miðinn kostaði alveg slatta en þó innan við 2500 NOK sem var viðmiðunin. Við létum taka frá miða og hugsuðum málið og á föstudaginn staðfestum við. Þannig að ég er ekki að koma ein á mánudaginn Cool Þórður Logi ætlar að skella sér með. Skipulagið er reyndar ekki alveg komið á hreint en hann verður allavega í nokkra daga á Hvanneyri en það er mögulegt með hjálp góðra vina. Ég verð að vinna á Suðurlandinu þá daga en svo sýnist mér við fara norður á föstudeginum í okkar kæra Skagafjörð og þar verður Þórður Logi seinni vikuna á meðan ég er austur á Héraði. Ætli við hittumst ekki svo á Borgarfjarðarsvæðinu á föstudeginum og fljúgum heim laugardagsmorgninum 9. okt. Þetta kostar auðvitað mun meiri fyrirhöfn að hafa hann með, púsla öllu saman og svona en ég held að það sé vel þess virði.
Í dag erum við heima, það er skipulagsdagur á leikskólanum en ég verð að nýta daginn vel í lærdóm. Vikan er þéttskipuð hjá mér, verkefni, verkefni, verkefni og inn á milli nokkrar léttar æfingar - má ekki ofgera mér síðustu vikuna fyrir hálfa maraþonið í Osló á sunnudaginn Smile
 
Tedda
Vá... en gaman sá held ég eigi eftir að njóta sín. Vonandi fáum við að sjá ykkur eitthvað smá. Hlakka ekkert smá til ;)
#1
20. september 2010 klukkan 08:41
 
Magga
Segi það sama og Tedda, vonandi sjáumst við eitthvað smá :) En þýðir þetta plan sem sagt að þú komist ekki í saumó 7. okt????

Vonandi sjáum við Þórð Loga eitthvað líka, hann er velkominn í heimsókn til Jómundar Arnar :D
#2
20. september 2010 klukkan 09:26
 
Elín


það væri gaman að hitta þig þegar þú ert á suðurlandinu. Við erum flutt úr Mosfellsdalnum í Flóahrepp.

kveðja
Elín
#3
20. september 2010 klukkan 10:56
Gott plan
takk fyrir mig aftur, njótið íslandsferðarinnar þó hún verði þétt setin af vinnu
#4
21. september 2010 klukkan 12:41
 
Sigga Júlla
Það vona ég líka, Tedda. Geri ekki ráð fyrir því, Magga. Já, það væri gaman, Elín. Sömuleiðis, Bebba.
Bebba hitti naglan a höfuðið, ég verð á kafi í vinnu í þessari ferð;)
#5
21. september 2010 klukkan 17:54

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.