Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Þetta er Þ-blogg!!!

14. september 2010 klukkan 17:44
Það eru þrír dagar þangað til Bebba kemur í heimsókn.
Það eru tólf dagar í hlaupið mikla í Osló.
Það eru þrettán dagar í ferð til Íslands.
Þangað til á ég eftir að skila einu reikningsverkefni í skogplanlegging, einu hópaverkefni um upplifun í skógi, flytja einn fyrirlestur og skrifa tvær litlar skýrslur, okey það gera fimm verkefni.
Þungu fargi af mér létt á morgun þegar ég verð búin að halda fyrirlestur um samanburð á módelum til að ákvarða ákjósanlegustu og hagkvæmustu tímapunkana á lokahöggi...uuuuu já, þá verða bara fjögur verkefni eftir!!!
Þess á milli þarf ég að æfa fyrir hlaupið, vera hluti af fjölskyldu og undirbúa Íslandsferð!
Þeink jú verrí næs!! Rúllum´essu´upp!!


 
Sólrún Halla
Sigga mín!! Nóg að gera og spennandi dagar framundan, þú klárar þetta allt saman með sóma ef ég þekki þig rétt og njóttu þess bara að fá Bebbu í heimsókn og koma síðan til Islands!!!
#1
14. september 2010 klukkan 19:18
jey ég er alveg að koma og við tökum góða afslöppun með Berglindi á milli okkar stúfulla af rauðu úr fríhöfninni
#2
14. september 2010 klukkan 19:42
 
Rakel
Þú ferð létt með þetta! Gætir örugglega bætt við þremur börnum, mjöltum kvölds og morgna, kleinubakstri og sláturgerð.
Farðu samt varlega í rauðvínið með Bebbu :-)
#3
14. september 2010 klukkan 21:40
 
Magga
Ef einhver getur þetta þá er það þú :)

Hurðu..hvað verðurðu lengi á landinu og hvenær kíkirðu í Borgarfjörðinn?? Var að pæla í að skella á eins og einum saumó ef þig myndi langa til að kíkja í svoleiðis :)

Kv. Magga
#4
15. september 2010 klukkan 09:47
 
Sigga Julla
Er eiginlega ekkert med neitt a hreinu vardandi ferdina heim, Skagafjørdurinn situr fyrir allavega helgina sem eg verd laus. Lattu mig bara vita hvenær klubbur er og eg kiki kannski ef eg hef tøk a.
#5
15. september 2010 klukkan 10:46
 
Anna Lisa Hilmarsdottir
Þú ert örugglega búin að rúlla þessu upp núna þegar þetta er ritað :)
Þú þóttafulla þriðjudags þokkadís
Þeiknjú veri næs

Þv Anna Lísa
#6
17. september 2010 klukkan 07:38

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.