Afmćlishelgi
05. september 2010 klukkan 08:20
Það sem af er helgi hefur ýmislegt verið brallað. Á föstudaginn eftir skóla og vinnu bakaði ég kökur fyrir kökuloddið sem var í gær, við mæðginin fórum í búð til að kaupa afmælisgjöf, okkur var boðið í mat (alísvín) á meðan Haukur fór með vinnufélögunum sínum í villisvínaveislu. Ég varð svo að sækja hann tímanlega í veisluna því ekki var hægt að missa af landsleiknum. Villisvínaveilsan var haldin á sveitabæ hjá gömlum bónda sem sérhæfir sig í villisvínaveislum, ég þurfti að keyra malarveg eitthvert lengst út í skóg og rambaði að lokum á þetta. Leikurinn var hafinn þegar heim var komið en það var ekki tekið út með sældinni að finna út úr því hvar leikurinn var sýndur því hann var á lokaðri stöð sem ekki var mögulegt að kaupa aðgang að nema í gegn um tölvu og það kostaði eitthvað á milli 100 og 200 NOK sem er slatti mikið. En eins og allir vita þá fór þetta ekki nógu vel.....
Í gærmorgun, kláraði ég að græja "lodd" kökurnar, pakka þeim inn og svo bakaði ég eina BOMBU í tilefni dagsins, fór í spinningtíma með Bríeti og ég held ég geti fullyrt að ég hef sjaldan farið í jafn góðan tíma VÁ!! Þegar heim var komið græjuðum við okkur, smurðum nesti og fórum öll fjölskyldan í Tusenfryd þar sem við áttum stefnumót við vini okkar frá Elverum þau Oddný, Ola og börn - tókum salibunu í nokkrum tækjum og buðum þeim svo heim í afmæliskaffi. Oddný, Ola og stelpurnar brunuðu af stað til Jessheim en Svavar varð eftir hjá okkur, tekur lestina upp í ELverum í dag. En best að halda áfram.....að kaffitímanum loknum skelltum við okkur með nokkra maísstöngla og smá kjöt yfir til Hrafnhildar og Ragnars þar sem þau höfðu skipulagt sameiginlega íslendingamáltíð, við borðuðum og fórum snemma heim, alveg búin á því - Haukur eftir villisvínadjammið og ég eftir spinningtímann.
Í dag ætla ég út að skokka, Kunningi Hauks hann Pétur Hrólfs ætlar að kíkja í heimsókn og svo er það bara að njóta veðurblíðunnar.
Svo er stutt í næstu Tusenfrydferð, Vilborg frænka mín og dóttir hennar hún María Lovísa fluttu til Bærum fyrir tæpum mánuði síðan og við höfum enn ekki hist, þær stefna að því að koma um næstu helgi
Stefán og Svavar ætla að reyna að komast á veiðinámskeið eftir hálfan mánuð í Trysil, þetta er svona fugla og héraveiðinámskeið, mjög spennandi. Helgina 24.-26. sept fer Stefán síðan á fermingarbarnamót sem verður haldið í Svíþjóð og er sameiginlegt fyrir íslenska krakka á norðurlöndunum. Brjálað að gera hjá drengnum!!!
Jæja best að hætta þessu og koma sér í hlaupagallann, eigið góðan dag

til hamingju með gamla, skilaðu kveðju til hans
#2
05. september 2010 klukkan 16:24
Vilborg frćnka
Hlakka til að koma :)
#3
05. september 2010 klukkan 17:06
kv. mamma