skóla-zumba
02. september 2010 klukkan 05:57
Jæja þá eru haustannarkúrsarnir að skríða af stað, einn af öðrum. Þónokkuð er af verkefnum liggja fyrir og svo verða "seminar" sex sinnum á önninni þar sem við eigum að skiptast á að kynna innihald ritrýndra greina og koma af stað umræðu um þær. Ég var svo agalega heppin að vera dregin fyrst þannig að nú fer ég að undirbúa þann fyrirlestur á fullu. Svo er ég nú svo heppin að Seminar 2 verður akkúrat þegar ég verð á Íslandi sem þýðir að ég verð (af því ég kemst ekki að hlusta á fyrirlestrana sem verða þá) að skrifa smá verkefni um þær greinar sem verða til umfjöllunar á því Seminari. Svo eru allavega tvö önnur skilaverkefni sem ég ætla að vera búin með áður en ég fer heim, þannig að það er í nógu að snúast. Þetta þýðir það að ég verð að vera skipulögð og vinna mikið á vikrum dögum því helgarnar reyni ég að halda sem mest fyrir fjölskylduna. Það lítur allavega út fyrir að allar helgar í september eru að einhverju leyti planaðar en það eru tívolíferðir, heimsóknir frá Íslandi, afmæli, meiri maís-týnsla, fermingarbarnamót í Svíþjóð, Oslómaraþon og svona mætti lengi telja.
Við, þrjár íslenskar konur fórum í gærkvöld og prófuðum s.k. ZUMBA í Ås treningsenter - jeminn eini, það var rosalega skemmtilegt, mæli með því að þið prófið en þetta er fínt með öðru. ZUMBA er eiginlega svona leikfimi eða öllu heldur bara spor með salsa ívafi, þar sem maður þarf að hreyfa mjaðmirnar mjög mikið en það er eitthvað sem maður gerir ekki mikið eins og t.d. þegar maður skokkar eða hjólar. Þess vegna er ZUMBA klárlega einu sinni í viku hjá mér, svo er það spinpump tvisvar og skokk tvisvar. Ég held að það sé mjög vænleg blanda.
Við ætlum að skella okkur til Svíþjóðar eftir vinnu í dag, það veitir ekki af að fylla á ísskápinn og bökunarskápinn. Bekkurinn hans Stefáns stendur fyrir kökuloddi á laugardaginn og þá þurfum við að leggja fram eins og tvær kökur, auk þess á elsti heimilismeðlimurinn afmæli um helgina - ætli ég skelli þá ekki í eina "Mississippi mud pie" fyrir hann. Vorum einhverntíman búin að hugsa okkur að skreppa til Gautaborgar um helgina en við frestum því frameftir hausti. Það er spáð fínu veðri um helgina, þannig að það verður eitthvað skemmtilegt brallað, eigum jafnvel von á vinum okkar í heimsókn - tóm gleði
Já, alltaf nóg að gera hér.....yfir og út!

Jóna Lind
Ég er einmitt að leitamér að æfingarmiðstöð hér í nágreninu, það er fínt að taka styrktatæfingar með hlaupunumog svo þarf ég endilega að komast í jóga. Ég sé að þetta zumba er að tröllríða öllu hér...ætti kannski að prófa það. Við stefnm einnig á Svíþjóðar verslunarferð fljótlega, heyri að það sé hagstætt að kaupa kjötvörur þar. Farið þið til Svinesund að versla ? Þessi helgi verður notuð til að koma sér fyrir en gámurinn kemur loksins í dag.
#1
02. september 2010 klukkan 09:33
ohh ég væri til í að fá ZUMBA í Borgarfjörðinn og prufa það.
Gaman að það er nóg að gera og skemmtilegt í september, hlakka til að eyða með þér góðri helgi í þessum mánuði
Gaman að það er nóg að gera og skemmtilegt í september, hlakka til að eyða með þér góðri helgi í þessum mánuði
#2
02. september 2010 klukkan 12:26
Jóna Lind, við förum til Nordby sem er rétt við Svinesund eða hinu megin við E6. Já við verslum fyrst og fremst kjöt og osta þar en úr því við förum þangað þá kippum við öðrum varningi með - svo var ég að fréttað það væri komin fiskbúð í Nordbysenter þar sem hægt er að kaupa íslenskan fisk:D Kíktu á þessa heimasíðu: http://www.nordby.se/
#3
02. september 2010 klukkan 12:48