Til hamingju með nýju þvottavélina. Þetta með mánudagana stenst alla vega ekki hjá mér, það hefur oft reynst mér farsælast að byrja á einhverju nýju á mánudögum t.d. fluttum við í Dalsmynni á mánudegi.
Kveðja mamma
engin mæða hér!
30. ágúst 2010 klukkan 12:19
Jæja þá er ágústblokkinni formlega lokið, prófið afstaðið og ekkert annað að gera nema að finna sér eitthvað að gera það sem eftir lifir dags.
Haustönnin byrjar svo á morgun.
Ég mun því nýta það sem eftir lifir dags til að gera það sem hefur setið á hakanum um nokkurt skeið, þ.e. að þrífa, taka utan af rúmum, þvo þvott Í NÝJU ÞVOTTAVÉLINNI og prjóna. Stefnan er svo að fara í SpinPump tíma í Ås treningsenter seinnipartinn, elda einhvern mat og svo byrjar ný syrpa í uppáhaldssjónvarpsefninu mínu "71°N".
Á morgun byrjar haustönnin formlega og við munum fá gest frá Íslandi um kvöldmatarleytið en Torfi vinur okkar er væntanlegur.
Fleira er ekki í fréttum á þessum gullfallega mánudegi - hver fann upp þetta með að mánudagar væru til mæðu.... ég bara spyr því hann er sko engin mæða hér!!

Sú ráðagóða
#2
30. ágúst 2010 klukkan 18:02
Margrét
Ein pæling...miðað við þetta "mánudagur til mæðu"-dæmi er maður þá ekki mæðuveikur ef maður er þunglyndur??
Bara að pæla...
Kv. Magga
Bara að pæla...
Kv. Magga
#3
31. ágúst 2010 klukkan 14:20
Sú ráðagóða
Eimitt gæti þetta ekki verið svona:
Mánudagur til mæðu = mæðuveikur
Þriðjudagur til þrautar = að finna verulega til
Miðvikudagur til moldar = gróðursetja
Fimmtudagur til frama = framapot t.d. í bankageiranum
Föstudagur til fjár = fara að smala fé
Laugardagur til laugar = þrífa handlaugar
Sunnudagur til sólar = bera á sig sólarvörn og vona að sólin skíni alla sunnudaga
kv. mamma/anna

#4
31. ágúst 2010 klukkan 17:00
En þetta með mánudaga til mæðu...er nokkuð meir að marka það en t.d. föstudagar til fjár?? ;) Ég hef að minnsta kosti ekki orðið vör við að ég fái eitthvað fleiri peninga á föstudögum en aðra daga :þ
Knús í þitt hús!