Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

laugardagur til lesturs, spinnings og nammiáts!!!!

28. ágúst 2010 klukkan 16:11
Á morgun eru akkúrat fjórar vikur í stóra hlaupið í Osló Laughing Við Bríet erum svona eitthvað að dunda við að æfa fyrir þetta. Ég skrái allar æfingarnar mínar á hlaup.com og tja - þetta eru engar maraþonhlauparaæfingar sko, heldur meira svona blanda af hlaupi, göngu og hjóli. Að jafnaði er ég að æfa þrisvar í viku og vegalegndin er ca 20 km (á viku). Verð að bæta aðeins í næstu fjórar vikurnar Smile Við skelltum okkur til dæmis í spinningtíma í hádeginu í dag, gengum á og frá æfingu. Stefnum á skokk á morgun en ef það verður rigning þá er plan B að fara í treningsenterið í MRL tíma.

Ég er að lesa fyrir próf þessa helgina, já það er próf í ágústblokkarkúrsinum. Próflestur púffff, þá drekk ég ótakmarkað af kaffi, er endalaust að narta í eitthvað og er alveg ómöguleg. Þannig að hreyfingin er alveg nauðsynleg til að brjóta upp daginn. Haukur og strákarnir skruppu og týndu maís í dag, þetta er fyrsta ferðin þetta haustið en stefnan er að fara oftar. Síðan ætla Stefán og Haukur í bíó í kvöld en ætli ég verð ekki að dunda við lestur þegar Þórður verður sofnaður.....jú, ég reikna með því.

Úti hellirignir, þrumur og eldingar.

p.s. keypti bland í poka í dag.......ég veit ég var hætt að borða nammi EN ég á bágt!!!!
 
Skinnið - þegar maður á bágt er ekkert eins gott og SÚKKULAÐI (enda er það grænmeti)
#1
28. ágúst 2010 klukkan 17:09
 
Jóna Lind
ohhh það hefur ekki verið nægilega markvissaræfingar hjá mér síðan ég kom til Norge, aðallega vegna meiðsla í nára. Svo er ég að finna út með hlaupaleiðir í hverfinu mínu en hér er ansi mikið um brekkur uffff... Stefnan er þó enn á 21 km í OM
#2
28. ágúst 2010 klukkan 17:29
æ kerlingar greyið, jæja bland í poka er ágætt með prófalestri.
Það styttist í að ég komi, á ég ekki að grípa belju í fríhöfninni til að setja í Berglindi?
Hlakka til að hitta ykkur
#3
30. ágúst 2010 klukkan 11:26
Jú Berglindi minni þætti ægilega vænt um það.....
#4
30. ágúst 2010 klukkan 11:29

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.