Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

yfirlit....

26. ágúst 2010 klukkan 06:17
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld!!
Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, nú eru 13 mánuðir síðan við silgdum á vit ævintýranna - já pælið í því og ekki nema 10-11 mánuðir þangað til við siglum heim. Fyrir ári síðan þótti mér það fjarstæðukennt að við ættum eftir að endast hér úti og tvö ár voru á þeim tíma heil eilífð. En það hefur allt gegnið ótrúlega vel, skólinn er á réttu róli hjá mér, Stefán þrífst vel í sínum skóla og á fullt af vinum, Þórður brillerar í leikskólanum og Haukur hefur það fínt í sinni vinnu - er búinn að prófa fullt af nýjum hlutum og bæta í sinn reynslubanka.
Framundan er stífur vetur hjá mér en að einhverju leyti léttari vetur fyrir strákana og svo ætla ég að vona að snjóþunginn verði ekki eins mikill í vetur og hann var síðasta vetur þannig að álagið á Hauk verði minna.

Flutningur!!
Ég var á fundi í gær hjá SiÅs, það er búið að vera að gera upp blokkirnar hér á Skogveien, nr. 22 er búin og nr. 28 er að klárast, svo verður byrjað á nr. 26 í október og hjá okkur í nr. 24 í apríl....og þá þurfum við að flytja.....svaka stuð semsagt þegar ég verð á lokasprettinum í ritgerðinni jahúúúúú!!!

Gestir!!
Gestagangur verður einhver í vetur. Bebba kemur við þegar hún verður á fundarferð um miðjan sept. Ein vinkona okkar er að gæla við að koma í helgarferð í lok jan. Ein fjölskylda stefnir á að kíkja við seinnipartinn í febrúar (hyttetur yfir helgi+hótel í Osló). Svo veit ég af vinum sem langar að koma einhverntíman en eru ekki búin að ákveða það endanlega. Mamma og pabbi stefna á að koma í júní á næsta ári, veit ekki hvort þau kíkja eitthvað í vetur.

Frí!!
Markmið vetrarins hjá okkur er að plana nokkrar hyttu og skíðaferðir á fríhelgunum hans Hauks. Jól og áramót eru óplönuð, nema að sennilega fer Stefán til Danmerkur um jólin. Ég geri ráð fyrir að páskarnir verði ekki skemmtilegir hjá mér árið 2011 þar sem þeir eru í lok apríl, rétt fyrir ritgerðarskil en sjáum til með það...... Laughing EN það er svo langt í þetta allt saman en samt ótrúlega stutt!!!

En fyrst þetta!!!
Næsta mál á dagskrá hjá mér er lestur, fer í próf í vinnusálfræði á mánudaginn, geggjað stuð!!


já og átið á mér!!!

Í gær borðaði ég þetta:
Morgunmatur: Cultura+kornfleks+nektarína
10 kaffi: Nektarína
Hádegismatur: 2 egg, salat + salatsósa+ brauðsneið
Síðdegi: Hrökkbrauðsneið m smjöri+osti
Kvöldmatur: Svínakjöt+grænmeti+kartöflur
Kvöldkaffi: Rauðvínsglas hjá Bríeti

Rauðvínsglasið var nú ekki á dagskrá en eftir að hafa gengið rúmlega 8 km þá bauð Bríet mér í rauðvín um kvöldið og við horfðum á "Hamarinn" á NRK1, ferlega gaman að sjá svona íslenska sjónvarpsþáttaseríu í norska sjónvarpinu Smile

 
Vilborg frænka
Það væri nú gaman ef við gætum troðið einhverjum hittingi inn í planið :) Þarf að fá smá Noregsfræðslu frá mér reyndara fólki! hehehe
#1
26. ágúst 2010 klukkan 16:09
Stundum á maður bara skilið að fá sér rauðvín :)
#2
27. ágúst 2010 klukkan 10:42
 
Jóna Lind
Jæja þá er ég mætt á svæðið, bý í Bærum, Wilh.Wilhelmsensvei 66 f Hosle. Mjög fín staður og stelpurnar mínar byrjaðar í skólunum sínum og gengur bara vel. Gámurinn er rétt ókominn svo að það bara útilegustemming hjá okkur núna. Við þurfum endilga að hittast einhvern tímann. Kv Jóna Lind
#3
27. ágúst 2010 klukkan 14:42

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.