Þú ert greinilega búin að sjá ljósið :) Þessi texti hjá þér gæti alveg verið úr fyrirlestri hjá mér!!! :)
Hollur er heimafenginn baggi - það hefur oft sýnt sig og þar að auki erum við þá ekki upp á aðra komin með lífsnauðsynjar, sem getur verið mikilvægt þegar á reynir.
Gæti skrifað langar pælingar um þessi mál líka, en það bíður betri tíma .....
Gangi þér vel
Amish...sjálfær þróun....
23. ágúst 2010 klukkan 18:22
Byrjaði á þessari færslu í gær 23. ágúst en hafði ekki orku í meira en tvær línur og klára því þetta núna í kvöld (24. ágúst).
Horfði á þátt um Amishfólkið og þá rann upp fyrir mér ljós, það að afla sjálfur þ.e. veiða, tína ber, sveppi, fjallagrös, eiga hænur, býflugnabú, rababara, jarðaber, kálgarð, gróðurhús og svo framvegis er einmitt málið
Langar til að eiga sneisafullt búr af allskonar afurðum t.d. sultum, saft, krydd og te.....
Hef reyndar alveg lifað svona, þ.e. týnt ber og ræktað eitt og annað en eiginlega ómeðvitað - langar til að bæta um betur. Svo er annað sem ég mun hafa í huga það er að það sem ég þarf að verða mér út um sé íslenskt ef sá valkostur er fyrir hendi. Sjálfbærni og samheldni verður mitt mottó....og svo verð ég að muna að vera sjálfri mér samkvæm
Auðvitað get ég ekki gengið alla leið, ég er auðvitað háð bílnum mínum, verð að komast á milli staða, bíllinn er innfluttur - get ekki búið hann til en eldsneytið þar eru valkostir. Fötin mín þar hef ég val, íslensk hönnun, íslenska ullin - love it!!
Þannig að þegar ég flyt heim til Íslands látið ykkur ekki bregða þá er stefnan að ég toppi mig
Ég kann ákaflega vel við hugtakið sjálfbærni og hefur "sustainable development" eða sjálfbær þróun oft verið fleygt fram þegar menn rökræða t.d. um nýtingu lands en á nú við alla aðra hluti einnig.
Hugtakið hefur verið í notkun í rúmlega tuttugu ár og það sem átt er við með sjálfbærri þróun er: "Þróun sem gerir okkur kleift að mæta nútíma þörfum án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum." Hverjar eru okkar þarfir og komandi kynslóða? Matur, húsaskjól, menntun, siðferði, já og auðlindir!!! Hugsum okkur að við búum á eyjunni okkar og það kæmi eitthvað uppá í líkingu við stríð, náttúruhamfarir eða annað í þeim dúr, hvað ef við þyrftum að stóla algjörlega á okkur sjálf, getum við það? Ég nefni siðferði því ég er ekki viss um að þróunin þar sé jákvæð fyrir afkomendur okkar.
En þetta var bara svona smá pæl....nenni ekki að skrifa allt pælið - gæti haldið áfram með þetta eftir nokkra daga.....er að fara ð horfa á einn innfluttan afþreyingaþátt í sjónvarpinu.
Góðar stundir.
Horfði á þátt um Amishfólkið og þá rann upp fyrir mér ljós, það að afla sjálfur þ.e. veiða, tína ber, sveppi, fjallagrös, eiga hænur, býflugnabú, rababara, jarðaber, kálgarð, gróðurhús og svo framvegis er einmitt málið
Langar til að eiga sneisafullt búr af allskonar afurðum t.d. sultum, saft, krydd og te..... Hef reyndar alveg lifað svona, þ.e. týnt ber og ræktað eitt og annað en eiginlega ómeðvitað - langar til að bæta um betur. Svo er annað sem ég mun hafa í huga það er að það sem ég þarf að verða mér út um sé íslenskt ef sá valkostur er fyrir hendi. Sjálfbærni og samheldni verður mitt mottó....og svo verð ég að muna að vera sjálfri mér samkvæm
Auðvitað get ég ekki gengið alla leið, ég er auðvitað háð bílnum mínum, verð að komast á milli staða, bíllinn er innfluttur - get ekki búið hann til en eldsneytið þar eru valkostir. Fötin mín þar hef ég val, íslensk hönnun, íslenska ullin - love it!! Þannig að þegar ég flyt heim til Íslands látið ykkur ekki bregða þá er stefnan að ég toppi mig

Ég kann ákaflega vel við hugtakið sjálfbærni og hefur "sustainable development" eða sjálfbær þróun oft verið fleygt fram þegar menn rökræða t.d. um nýtingu lands en á nú við alla aðra hluti einnig.
Hugtakið hefur verið í notkun í rúmlega tuttugu ár og það sem átt er við með sjálfbærri þróun er: "Þróun sem gerir okkur kleift að mæta nútíma þörfum án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum." Hverjar eru okkar þarfir og komandi kynslóða? Matur, húsaskjól, menntun, siðferði, já og auðlindir!!! Hugsum okkur að við búum á eyjunni okkar og það kæmi eitthvað uppá í líkingu við stríð, náttúruhamfarir eða annað í þeim dúr, hvað ef við þyrftum að stóla algjörlega á okkur sjálf, getum við það? Ég nefni siðferði því ég er ekki viss um að þróunin þar sé jákvæð fyrir afkomendur okkar.
En þetta var bara svona smá pæl....nenni ekki að skrifa allt pælið - gæti haldið áfram með þetta eftir nokkra daga.....er að fara ð horfa á einn innfluttan afþreyingaþátt í sjónvarpinu.
Góðar stundir.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
#2
25. ágúst 2010 klukkan 11:29
Inga Guðmundsdóttir
Sko Sigga sjálfbær þróun er bara gott mál en með bílin það eru til hestar þú færð þér bara nokkra .Haukur væri nú ekki í vandræðum með að smíða fyrir þig hestakerru og vagn sem þú gætir notað til hátíðabrigða . Er það ekki rétt hjá mér?
#3
26. ágúst 2010 klukkan 23:08
Mig hefur t.d. oft langað til að rækta grænmeti til heimilisins sjálf, kartöflur, tómata, kál, paprikur og fleira, það er bara spurningin með geymsluna sem stoppar mig...ég ætti kannski bara að byggja lítinn skúr úti í garði þar sem ég gæti geymt allt saman í :) Einangra hann bara þannig að það myndi ekki frjósa í honum og hafa hitastigið ca 10°C ;) Nóg er að minnsta kosti plássið í garðinum :D