Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hreindýraveiðar í Dovrefjell

23. ágúst 2010 klukkan 10:35
Ég tók lestina héðan frá Åsi um hálf eitt á miðvikudaginn, það byrjaði reyndar ekki vel því henni seinkaði um korter og ég varð svolítið stressuð um hvort ég næði að hlaupa á milli brautarpalla á Oslo S, yfir í lestina sem ég ætlaði að taka upp í Hamar. Þetta tókst allt saman mjög vel, ég hafði með mér glósur sem ég ætlaði að lesa á leiðinni en ég fékk engan frið til þess vegna þess að við hliðina á mér sat gömul kona (72 år gammel Oslo jenta) sem talaði alla leiðina. Þegar ég kom til Hamar tók Oddný á móti mér, hún var ekkert rosalega hress hafði fengið í magann um nóttina og hafði bara verið heima um daginn. Við fórum í vinnuna til Ola í Skogfröverket, fengum okkur smá kaffi þar, skruppum í búð og keyrðum svo af stað. Fyrsta stopp var (Lilleström) Lillehammer (á þetta að vera) þar sem við fengum okkur kaffi, kíktum í Intersport og kíktum á ýmislegt bráðnauðsynlegt og brunuðum svo upp Guðbrandsdalinn. Við beygðum út af veginum við Ringebu og keyrðum yfir Ringebufjellet, komum niður í Atnadalen og keyrðum í norðurátt til Folldal og þaðan í áttina að E6 í Dovre. Við gistum í hyttu fyrstu nóttina. Keyrðum svo áfram til Kongsvoll þar sem við geymdum bílinn og gengum af stað. Það var ansi krefjandi ganga upp miklar brekkur upp í gegn um skóginn og þar fyrir ofan tóku við móar, við tjölduðum í um 1300 m hæð en ég held ég hafi aldrei áður tjaldað í svo mikilli hæð. Fyrsta kvöldið sáum við moskuxahópa  og einn hreindýrahóp en því miður var veiðitímabilið ekki byrjað og við gátum ekkert annað gert en að fylgjast með hópnum. Á föstudagsmorgun mátti byrja að veiða, það var ræs kl 4:00 við héldum af stað frá tjaldinu upp úr kl 5:00. Það var þoka og smá rigningarúði. Við gegnum og gengum og gengum, sáum engin dýr, fullt af ummerkjum um þau á svæðinu en ekkert meir. Við lentum í því að vera óþægilega nálægt moskus-kú og vorum fljót að koma okkur í hvarf Embarassed Við gengum á einn topp í leiðinni sem var 1700-1800 m.y.s.
Þegar við komum í tjaldið var staðan sú að Oddný var orðin fárveik, henni var ískalt og sjóðheitt á víxl, með höfuðverk og leið mjög illa. Þá var tekin ákvörðun um að laugardagurinn yrði heimferðardagur. Við vorum svo komin niður til Kongsvoll um klukkan tvö á laugardeginum, fengum okkur smá kaffi og meðlæti áður en við keyrðum heim á leið. Bílferðin frá Kongsvoll til Elverum tók rúma þrjá tíma. Ég gisti svo þar og tók rútuna í bítið á sunnudag, var komin hingað heim á Skogveien um hádegi.
Þó þessi ferð hafi ekki farið eins og vonir stóðu til þá var þetta frábær upplifun, landslagið æðislegt, skemmtilegt fólk, flott hreyfing og algjörlega eitthvað sem á eftir að koma sér vel í reynslubankanum Wink
Ég hef núna ferðast um fullt af svæðum í Noregi og ég held að ég hafi séð eitt fallegasta svæði Noregs á heimleiðinni en það er Rondane - ætla klárlega að fara þangað í hyttu við tækifæri. Svo sá ég líka hluta af Pilgrimveien sem væri gaman að fara í áföngum einhverntíman í framtíðinni og Lillehammer!!! Jeminneini hvað það er kósi þar, helgarferð þangað klárlega á dagskrá Wink og svo væri líka ferlega gaman að ganga á Snöhettu í Dovrefjell sem er sérlega fallegt fjall og var lengi vel talið hæsta fjall Noregs en hún er 2286 m.y.s
Kíkið endilega á myndirnar úr ferðinni, þær liggja hér.
Hæ snúllan mín :-)
Takk fyrir síðast. Bara að leiðrétta smá, við stoppuðum í Lillehammer ekki Lillestrøm;-)
Ferlega fínar landslagsmyndirnar ;-) Þarf að kíkja á mínar og deila með þér.
Heyrumst skvís.
Oddný spræka ;-)
#1
23. ágúst 2010 klukkan 13:35
Það er ekki í lagi með mann!!! Takk Oddný, auðvitað á þetta að vera Lillehammer hahhaha, leiðrétt hér með;)
#2
23. ágúst 2010 klukkan 14:01
bíddu ok.. hljómar eins og ég sé frá fornöld en voruð þið tvær stúlkur á hreindyraveiðum með byssur og læti ?

Ef svo er .. þá YOU ROCK GIRL!!!!

kallinn fór á veiðar í fyrra.. ég kallaði það göngutúr með byssuna.. því ekki kom neitt kjet í frystinn hjá mér :)
#3
23. ágúst 2010 klukkan 21:12
Já Oddný skellti sér á námskeið síðasta vetur og tók skotleyfi, hún sótti svo um að fá að skjóta hreindýr og fékk úthlutað leyfi á ákveðnu svæði. Skotveiðitímabilið er í fjórar vikur þannig að hún hefur þann tíma til að ná dýri. Við vorum ekki bara tvær einar, sambýlismaður Oddnýjar kom með en hann hefur áratuga reynslu af skotveiði, skaut t.d. sitt fyrsta hreindýr 16 ára (ekta norsari).....
#4
24. ágúst 2010 klukkan 04:54
 
Jóna Lind
hei...já Lillehammer er flottur staður, fer klárlega í skíðaferð þangað í vetur :o)
#5
27. ágúst 2010 klukkan 14:38

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.