Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Allt klárt! Farin á hreindýraveiðar :)

18. ágúst 2010 klukkan 06:59
Jæja þá er allt klárt, búin að pakka í bakpokann, allskonar föt, hlý og regnheld í bland, ull og aftur ull, þurrmatur, harðfiskur, flatkökur, bollasúpur, smurostur í túbu, kex, hnetur, þurrkaðir ávextir, kakó, te, kaffi, svefnpoki, gsm, gps, kíkir, myndavél, peningar, bolli, skeið, gaffall, hnífur, sólgleraugu, tannbursti, tannkrem, blautþurrkur, klósettpappír...... Já ég held að ég sé með allt það nauðsynlegasta Cool Öllu þessu hef ég troðið í bakpokann minn og er klár í fjagra daga útiveru.
Svona er planið:
Ég tek lestina héðan inn til Osló S, þaðan tek ég aðra lest til Hamar og býst við að vera þar um klukkan þrjú. Þar hitti ég Ola og Oddný og við keyrum í norðurátt. Við ætlum að koma við í Lillehammer á leiðinni og versla ef eitthvað vantar, síðan höldum við áfram upp í Dovrefjell. Það verður smá lúxus á okkur fyrstu nóttina því við munum gista í hyttu sem vegagerðin á en Oddný vinnur hjá þeim. Síðan í fyrramálið keyrum við áfram í áttina að Snøhetta en það er svæðið sem Oddný fékk leyfi til að skjóta eitt stykki hreindýr á. Við ætlum að byrja á að ganga inn á fjallið og finna góðan stað til að slá upp tjaldinu, síðan er planið að taka daginn og fram í myrkur í að kanna aðstæður. Geri ráð fyrir að það verði þónokkuð mikil ganga á morgun semsagt. Á föstudaginn byrjar svo veiðitímabilið og þá má byrja að skjóta. Það er auðvitað ekkert öruggt að Oddný fái dýr á fyrsta degi og því gerum við ráð fyrir að vera þarna á gangi fram á sunnudag og miðast allt við það. Þegar búið er að ná dýrinu verðum við að gera að því og bera það með okkur í bílinn og ég ætla nú að vona að það verði ekki margir tugir kílómetra en maður má alveg búast við því Smile
Eg reikna svo með að taka rútu eða lest frá Elverum eða Hamar í síðasta lagi á sunnudagskvöldið, nema að Haukur og strákarnir verði komnir á móti okkur en það á allt eftir að koma í ljós.
Svo skal ég blogga um ferðina á mánudaginnLaughing
Góðar stundir.
 
Margrét
Skemmtu þér hrikalega vel! Þetta verður örugglega bæði hrikalega erfitt og hrikalega skemmtilegt! Hlakka til að heyra ferðasöguna!
#1
18. ágúst 2010 klukkan 08:22
 
Sú ráðagóða
Góða skemmtun, spennandi að heyra frá þér á mánudag.
kv. mamma
#2
18. ágúst 2010 klukkan 08:46
 
Halla
Spennandi, góða skemmtun og gangi ykkur vel:) Náði einmitt næstum einu hreindýri með höndunum á leiðinni að austan um helgina. Nema við fórum á mis í kringum hólinn sem ég læddist að og kvekindið slapp :)
#3
18. ágúst 2010 klukkan 21:27
 
Elín Bergsd
Ég trúi því ekki að þið Oddný ætlið að skjóta hreindýr.................

Hæ annars, les alltaf bloggið þitt og fylgist með afrekum þínum. Bið að heilsa
#4
21. ágúst 2010 klukkan 13:08

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.