Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hvatning

17. ágúst 2010 klukkan 06:30
Ég var að lesa grein eftir Sigurð Erlingsson á mbl um hvatningu en það er einmitt eitt af því sem er mikið rætt í ágústkúrsinum sem ég sit núna og því er ég mjög upptekin í þeim pælingum þessa dagana. Í greininni stendur m.a. þetta:
"Hvatning er meðvituð aðgerð annað hvort á eða innra með persónu til að hrinda af stað ákveðinni hegðun. Í stuttu máli hæfileiki til að framkvæma. Fólk veit oftast allt sem þarf að gera til að ná árangri en það bara framkvæmir ekki." Sjá greinina á mbl.
Og leiðirnar sem bent er á í umræddri grein til að viðhalda hvatningu eru t.d. þessar fimm:
1. Settu þér markmið.
2. Finndu jákvætt fólk til að umgangast.
3. Brostu.
4. Talaðu jákvætt.
5. Lestu hvetjandi bækur og farðu á hvatningarfyrirlestur.

OK eru ekki allir klárir í slaginn??
Kem örugglega til að skrifa meira um efni sem tengist þessum kúrsi þ.e. þegar ég verð búin að lesa í gegn um Kaufmann & Kaufmann og sitja í nokkrum fyrirlestrum. Þá ræði ég kannski um hvað veldur því að fjöldi veikindadaga eru algengari á sumum vinnustöðum en öðrum....


Matarbloggið....ég fór alveg eftir planinu í gær, fyrir utan það að ég datt óvart í saltstangir sem voru til inní skáp Frown og svo fór ég ekki út að hlaupa, var á flandri með drengjunum eftir skóla. Keyptum hlaupaskó á Stefán og hálfs árs kort í Ås treningssenter fyrir drenginn Cool

Matarplan dagsins í dag hljómar svona:

Mm: 250 ml Cultura+30 gr havrefras+1/2 banani
10 kaffi 1/2 banani
Hm: Brauðsneið+1 egg+40 gr túnfiskur+200-300 gr grænmeti
3 kaffi Nektarína
Km: 120-170 gr nautakjöt í sýrðum rjóma/koriander + 200-300 gr. grænmeti
Kk: Appelsína
Hreyfing Ætla út að hlaupa og/eða í treningsenter með Stefáni Snæ

Ég þori ekki öðru en að borða vel af kjöti áður en ég fer á fjöll, nauðsynlegt að vera með góðan forða Cool

 
Sissa
Sæl frænka.
Það er ekkert smá dugnaður í þér í sambandi við matardagbókina og hreyfinguna, held maður ætti að fara taka þig til fyrirmyndar..............svona eins og í greininni og í þínum fyrirlestrum greinilega, setja sér markmið, vera jákvæð og allt það! ;)
Gaman að lesa færslurnar eftir þig, greinilega nóg að gera og gott að búa í Noregi! ;)
Knús í hús,
Sissa.
#1
17. ágúst 2010 klukkan 09:27

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.