Real turmat
16. ágúst 2010 klukkan 15:51
Ég fór áðan og verslaði "Real turmat". Keypti alveg hreint heilan helling fyrir mikinn pening en þó hef ég það á tilfinningunni að svoleiðis nokkuð sé enn dýrara heima á Íslandi. Þannig að þannig lagað þá hef ég grætt 
En af hverju er ég haldinn þeirri sjálfspíningarhvöt að fara út í búð og kaupa þurrkaðan mat?? Það er nefnilega þannig að þegar lagt er af stað í fjögurra daga fjallatúr þá er nauðsynlegt að huga að orkunni og borða vel en jafnframt þarf maturinn að vera léttur. Já það er ekki tekið út með sældinni að vera að fara á hreindýraveiðar
En ljós í myrkrinu, ég verð líka með harðfisk, flatkökur og smjör