Annar í afmæli
14. ágúst 2010 klukkan 18:48
Í dag héldum við upp á afmæli Þórðar Loga, fyrir leiskólafélagana. Við fengum lánaðan "Parken" sem er útileiksvæði sem leikskólinn hans nýtir. Þetta er afgirtur garður með litlu bjálkahúsi þar sem er salernisaðstaða, eitt herbergi sem hægt er að nýta sem borðstofu og svo er forstofa með pínulitlum eldhúskrók. Pallurinn fyrir utan er yfirbyggður og svo er þónokkuð af leiktækjum þarna, kanínur í búri og undir rennibrautinni voru kettlingar. Bara gaman, þegar heim var komið fórum við með afgangana út í garð og gáfum krökkunum sem búa hér. Flottur dagur. Hiti 25°C logn, sól - yndislegt
Myndir sem við tókum í dag eru hér
Myndir sem við tókum í dag eru hér
Kveðjur úr Ólátagarði