Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Smá matarblogg eftir pöntun

11. ágúst 2010 klukkan 11:52
Ég er kolvetnafíkill!!!! Og þess vegna ákvað ég að taka í hnakkadrambið á mér og borða "rétt", vera með mig í gjörgæslu hvað mat varðar. Það er nefnilega alltaf þannig að ég dett í brauðát með tilheyrandi vanlíðan og orkuleysi og því er það mikilvægt fyrir mig að borða "rétt".  Ég þarf að passa uppá að hafa dagsskammtinn rétt samsettan og því reynist sá gamli góði danski mér ákaflega vel, ég kann þetta alveg Laughing  hér er smá útlistun á tveimur dögum og nokkur lykilatriði sem ég fer eftir.

Þetta borðaði ég í gær:

Morgunmatur 30 gr kornfleks (special K), 250 ml Cultura (AB mjólk) 1/2 banani
"10" kaffi 1/2 banani
Hádegsimatur ca 300 gr heimalöguð grænmetissúpa, 2 harðsoðin egg, 1 brauðsneið með smjöri.
Síðdegishressing Epli
Kvöldmatur Kjúklingabringur með bökuðu grænmeti, sólþurrkuðum tómötum og salat.
Kvöldhressing Appelsína

Þetta er dagurinn í dag.

Morgunmatur 30 gr kornfleks (special K), 250 ml Cultura (AB mjólk) 1 banani
"10" kaffi  Nektarína
Hádegismatur  ca 300 gr heimalöguð grænmetissúpa, túnfisksalat (80 gr túnfiskur + 30 gr majo) 1 baruðsneið
Síðdegishressing  1 brauðsneið með gúrku
Kvöldmatur  Matarboð en borða smá grænmeti áður en ég fer og passa mig að borða passlega mikið.
Kvöldhressing  Appelsína

Það sem er lykilatriði að borða á hverjum degi er:
4 ávexti.
Tvisvar sinnum grænmetisskammt ca 250-400 gr.
Ca 1/2 líter af mjólk eða 250 ml jógúrt eða AB mjólk.
Fita!!! ca 20-30 ml í formi smjörs á brauð, olíu í dressingu, majones í salat og ef ég geri ekkert af þessu þá tek ég olíu í matskeiðaformi á kvöldin.
Hámark tvær brauðsneiðar.
Ca 80-120 gr kjöt eða fisk eða 2 egg eða 50 gr ost í hádeginu.
Ca 120-170 gr kjöt eða fisk í kvöldmat.

Muna!!!
Alltaf samtals fjögur egg á viku, hvorki meira né minna. Alltaf minnst þrisvar sinnum í viku fisk, má vera oftar. Aldrei meira eða minna en þrisvar sinnum í viku rautt kjöt. Aldrei meira en 200 gr af o
sti á viku.
 
Margrét
Takk fyrir þetta :) Þarf svoooo að fara að byrja aftur en bara hef mig ekki í það :/ Það einhvernveginn vex mér svo í augum að fara að "hugsa" svona mikið fyrir hverja einustu máltíð, þótt ég viti það af fenginni reynslu að þetta er ekkert mál þegar maður ákveður að byrja :) Það er bara málið...ég get ekki tekið þessa ákvörðun! A.m.k. ekki enn. Vantar helling af spörkum í rassinn og pepp og stuðning og sjálfsaga og...og...og... ;)
En þetta kemur...markmiðið er að verða orðin hrikalega flott fyrir fermingu Guðrúnar Þóreyjar :D Ef ekki þá, þá bara fyrir fermingu Jómundar Arnar :D :þ

Gangi þér vel dúllan mín!
#1
11. ágúst 2010 klukkan 12:01
 
Silla systir
Frábært, kannski ég prófi matseðilinn þinn. Held að minni brauðneysla skili góðum árangri! Gangi þér vel Sigga mín :)
#2
11. ágúst 2010 klukkan 12:02
Ég ítreka það að ég er ekkert að þessu nema til að öðlast meiri orku en með þessu blassaða brauðátið virðist ég hreinlega fyllast af sleni. Er mjög sátt við blessuðu kílóin enda eru þau bara tala á einhverju tæki, enginn mælikvarði á andlega og líkamlega líðan.
#3
11. ágúst 2010 klukkan 12:19
 
Margrét
Nákvæmlega Sigga Júlla, talan á vigtinni er ekki mælikvarði á andlega og líkamlega líðan, nema ef talan er of há þá má, að minnsta kosti í mínu tilfelli, oft reikna með að andleg og líkamleg líðan sé ekki góð. Ég hins vegar hef fitnað meira en góðu hófi gegnir undanfarin ár, þannig að ég VERÐ að fara að gera eitthvað...hef samt ekki enn fundið sjálfsagann í að byrja...en það kemur :)

Kv. Margrét
#4
11. ágúst 2010 klukkan 14:04
ógó flott hjá þér!
#5
12. ágúst 2010 klukkan 07:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.