Útilega viđ Vinjeveien
09. ágúst 2010 klukkan 15:23
Útilega skildi það vera um helgina með Ola, Oddný og stelpunum.
Við lögðum af stað frá Åsi kl 16:30 á föstudaginn, fyrsti stoppustaður var Ski, þar sem við keyptum það sem vantaði að mati bóndans (bjór og mótorolíu). Við vorum komin til Elverum milli sjö og hálf átta en það var rosalega þung umferð svona ca frá Eidsvoll og norður fyrir Minnesund. Við borðuðum hjá Ola og Oddný og drifum okkur af stað upp Austurdalinn tja líklega um hálf tíuleytið um kvöldið. Við keyrðum upp í Koppang þar sem við keyptum okkur veiðikort og héldum svo upp dal eftir vegi sem kallast Vinjeveien og liggur í rauninni norðvestur frá Koppang, við vorum fljótlega búin að hækka okkur úr ríflega 250 hæð upp í tæplega 900 metra, vorum alveg í skógarmörkunum, tré á stangli og hreindýramosi og lyng þakti yfirborðið. Við fundum ekki staðinn sem við stefndum á að tjalda á þarna í myrkrinu, þannig að við tókum ákvörðun um að slá upp tjöldum og gista á alveg ágætisstað en samt ekki alveg eins og við stefndum að..... Við vorum sofnuð um klukkan tvö um nóttina.
Morguninn eftir byrjuðu börnin á því að tína krækiber, við borðuðum morgunmat, tókum niður tjöldin og keyrðum að Imsdalsfjellet og gengum á það. Ola þekkir þetta svæði mjög vel en þarna hefur hann oft verið á veiðum og hann benti okkur á hin ýmsu kennileyti, dali og fjöll. Þegar fjallgöngunni var lokið fórum við og fundum staðinn sem við vildum tjalda á, slógum upp tjöldum, fengum okkur smá að borða og héldum að vatni í nágrenninu þar sem reynt var að veiða fisk, en ekki tókst og svo tókum við smá kajaktúra, allir fengu að prófa, það var svo gaman!!! Þegar klukkan var langt gengin í níu fórum við í tjaldbúðirnar, grilluðum og nutum stundarinnar, sólarlagsins og kyrrðar. Vorum komin inn í tjöld og sofnuð um hálf eitt. Á sunnudagsmorguninn, fórum við í að pakka saman, borða morgunverð og keyra niður á við, týndum ber og fengum okkur vínarpylsur í Koppang. Við keyrðum heim á leið frekar snemma því búist var við mikilli umferð frá Elverum til Osló vegna hátíðar og sýningar sem var þar um helgina. Við vorum komin á Ås um hálf sjö um kvöldið. Allir alsælir eftir ekta norska útilegu í frábæru umhverfi með frábæru fólki.
Á morgun byrja ég svo í ágústblokk, kúrs sem er kenndur næstu þrjár vikur og heitir "Organisasjons- og ledelsespsykologi". Stefán Snær kemur heim á fimmtudag, við höldum upp á leikskólaafmæli fyrir Þórð á laugardaginn og eftir níu daga, já bara níu daga....ef þið bara vissuð!!!

En, hljómar eins og frábær helgi hjá ykkur, þið eruð hrikalega dugleg að ferðast um Noreg :D Um að gera að nýta tækifærið, svona fyrst þið eruð þarna!
Knús í kotið!