Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

útilega

05. ágúst 2010 klukkan 21:03
Á morgun er ætlunin að byrja daginn á skokktúr, taka til, versla inn og þegar Haukur er búinn í vinnunni ætlum við að leggja land undir fót. Stefnan verður fyrst sett á Elverum til Ola og Oddný og þaðan ætlum við að keyra norður fyrir Koppang, til fjalla þar sem við ætlum að tjalda og eyða helginni. Stefnt er að því að veiða, tína moltebær, fara á kajak og í gönguferð. Við erum öll mjög spennt Cool leiðinlegt samt að Stefán Snær skuli ekki vera með en hann er enn á Íslandi - kemur hingað heim eftir viku.

Þórður Logi fór ekki á leikskólann á tilætluðum tíma, þungur að vakna þannig að ég komst ekki út í morgunskokkið enda kannski eins gott - ausandi rigning!!!!
#1
06. ágúst 2010 klukkan 06:06

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.