Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

kílóa og hlaupablogg....

05. ágúst 2010 klukkan 09:25
Ég og Gunna erum búnar að vera duglegar að fara út að hlaupa saman núna undanfarið, höfum bætt okkur í hvert skiptið sem við förum og erum bara ansi ánægðar með okkur. Það er svo makalaust að oft hugsa ég áður en ég fer að hlaupa að þegar heim verði komið ætli ég að fá mér eitthvað svakalega gott en svo endar það oftast þannig að ég læt vatn og ávöxt duga. Hreyfingin hefur nefnilega ótrúleg áhrif á mataræðið, allavega í mínu tilviki. Thea var að senda mér póst um aðhaldanámskeið (Grete Roede) sem er ekkert ósvipað því sem dönsku vigtarráðgjafarnir bjóða uppá. Þetta er átta vikna námskeið, þar sem fundað er 1 sinni í viku í 1 til 1 1/2 klukkutíma, vigtað og frætt - mjög spennandi námskeið EN auðvitað kostar þetta peninga 1990 NOK!!! Það sem er innifalið auk fundanna og ráðgjafar eru tvær bækur. Það er fínt að taka svona námskeið til að koma sér í góðan matarlegan farveg, læra ný "trix" í hollum matarvenjum. Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvað ég er þung þessa dagana en ég finn það alveg að í sumarfríinu var ég ekki að léttast, eiginlega bara að bæta á mig!!! Gæti verið að ég þyrfti að taka burt 5 kíló en hvað með það....???!!!!
Mér finnst reyndar kílóatalan ekki segja neitt í raun, því þetta er jú bara tala en gefur ekkert viðmið um annað líkamlegt ástand. Ég veit ca á hvaða róli ég á að vera 67 kg +/- 5 kg. en auðvitað ef ég væri 25 kílóum of þung þá væri það ekki gott en ég meina að þó ég sé eitthvað þyngri en formúlan segi þá finnst mér skipta meira máli að vera í góðu líkamlegu ástandi, geta gengið upp á fjall án þess að ganga fram af mér, geta skroppið í hjólatúr, út að skokka, í leikfimi og svona mætti lengi telja Cool Svo er líka ágætis markmið að stefna að því að halda sér í sömu fatastærðinni, það virkar hjá mér og svo er það svo asssgoti mikill sparnaður Wink
 
Hanna
duglegar eruð þið :)
#1
05. ágúst 2010 klukkan 09:47
 
Margrét
Hrikalega eruð þið duglegar :) Þyrfti svo að fara að koma mér í gírinn...en það er alltaf "á morgun" og maður heldur að maður hafi svo svakalega mikið að gera, en kemst svo að því (þegar maður fer að hugsa betur) að maður eyðir örugglega miklu meira en klukkutíma í að gera "ekki neitt" heima hjá sér, sem maður gæti sko alveg notað í einhverja hreyfingu :)
Gangi þér/ykkur vel með framhaldið mín kæra :)

Kv. Magga
#2
05. ágúst 2010 klukkan 10:11
Geggjað duglegar!!!!

Heildarmyndin skiptir svo miklu máli, ekki tala á vikt :)

OG JÁ ÞAÐ ER SPARNAÐUR AÐ VERA Í SÖMU FATASTÆRÐ ÁR EFTIR ÁR Ó MÆ Ó MÆ...:)
#3
05. ágúst 2010 klukkan 10:42
 
Sú ráðagóða
Það er örugglega rétt að í flestum tilfellum er það sparnaður, en þá verður maður líka að eiga þvottavél sem ekki eiðileggur fötin Sigga mín. :)
kv. mamma
#4
05. ágúst 2010 klukkan 11:50
hahahah góður punktur mamma, það styttist í að ég kaupi nýja ;)
#5
05. ágúst 2010 klukkan 11:51
Jóna Lind KristjánsdóttirFlott er á svipupu roli og þú og nú er hjá þér að taka hreyfingu föstum tökum, ég er sammála með viktina er á svipuðu róli og þú og núna er það hlaupaformið sem gildir og líkamlegt ástand. Gangi þér vel
#6
06. ágúst 2010 klukkan 19:04

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.