Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Grimstad og Melody Gardot

03. ágúst 2010 klukkan 07:23
Eftir vinnu á föstudag brunuðum við á Skódanum til Moss þar sem við tókum ferjuna til Horten og keyrðum svo suður til Grimstad. Við vorum komin á Binabbgaten til Bríetar og Björns fyrir níu um kvöldið þar sem beið okkar þessi fína pizzuveisla og rauðvín. Húsið er alveg frábærlega staðsett, rétt ofan við miðbæinn en frá veröndinni er gott útsýni yfir höfnina og út í eyjar. Við tókum smá könnunarleiðangur í bæinn strax þarna um kvöldið og komum svo heim og sátum við spjall frameftir nóttu. Á laugardeginum fóru karlarnir og börnin í smá siglingu út í eyju en við Bríet fórum og hittum fisksalan og keyptum í kvöldmatinn, ekta norskan sumarmat; rækjur og krabba. Við gerðum okkur svo klárar fyrir kvöldið, borðuðum þennan fína mat og drukkum kampavín með (ekki amalegt). Við vorum svo keyrðar til Arendal þar sem við áttum miða á einn viðburð á "Canal street" en það voru tónleikar frá kl 18-24 með Hilde Louise Asbjørnsen, Richard Bona og Melody Gardot. Mér fannst þessi Hilde Louise alltof djössuð fyrir minn smekk og eiginlega ekkert spes, Richard Bona var mjög skemmtilegur og hress en toppurinn var auðvitað að sjá og hlusta á Melody Gardot. Ég á eiginlega ekki til eitt lýsingarorð yfir þá manneskju heldur verð ég að notast við mörg en samt næ ég ekki að koma orðum yfir þetta: Hún er magnaður tónlistarmaður, fjölhæf, sérvitur, skemmtileg, spes, einstök og og og ég gæti haldið svona lengi áfram. Ég mæli með tónleikum með henni EF ykkur líkar tónlist af þessu tagi. Ég mun lifa á þessari tónlistarveislu lengi en ég má ekki gleyma þeim fjölmörgu hljóðfæraleikurum sem spiluðu með þessu frábæra fólki, magnaðir alveg en ég verð að segja að sellóleikarinn sem spilaði undir hjá Melody hafi komið mér mest á óvart - hverskonar ólíklegustu hljóð geta komið úr því hljóðfæri....en eins og fyrr, það er ekki hægt að lýsa þessu með orðum, ég mæli með svona tónleikum.
Á sunnudeginum skruppum við í siglingu út í litla eyju, veiddum krabba og grilluðum pylsur, enduðum svo í köku og kaffi hjá Bríeti og keyrðum svo heim. Yndisleg helgi sem var allt of stutt.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.