Ísland eftir tvo mánuði
29. júlí 2010 klukkan 12:04
Ég ætlaði að fara heim til Íslands að vinna í lokaverkefninu mínu 1.-8. ágúst - það varð breyting á og ég kem í staðin í haust. Á flug heim þann 27. sept (daginn eftir stóra Oslóarhlaupið) og aftur hingað út þann 9. okt. Þetta verður vinnutörn þar sem ég verð nokkra daga í Biskupstungunum (Herdís blikk, blikk!!!!) og svo verð ég í nokkra daga á Fljótsdalshéraði (ættingjar fyrir austan blikk, blikk!!!!). Ég vonast til að geta eytt helgi í Skagafirðinum og nokkrum kvöldum í Borgarfirðinum. Lofa engu en vona það besta
Silla systir
Ég er strax farin að hlakka til að sjá þig :)
#1
29. júlí 2010 klukkan 17:56
Þórhildur
Er farin að hlakka til að hitta þig, þó að það verði kannski ekki mikið, vonandi tími í smá rautt..... :-)
#2
29. júlí 2010 klukkan 19:24
Margrét
Endilega láttu okkur vita hvenær þú verður á ferðinni svo við getum skellt inn eins og einum saumó...þótt hann verði kannski ekki á planinu ;)
Knús í kotið!
Knús í kotið!
#3
01. ágúst 2010 klukkan 12:23